Thordalsverslun
 
Haustið 1878 var Georg Thordal mæld lóð í Englendingavík á þeim slóðum sem englendingar höfðu reist íshús 1876.  Thordal þessi var danskur kaupmaður í Reykjavík.  

Sumarið 1881 hefst bygging húsa ofan við Englendingavík á hans vegum.  Voru smiðirnir þeir Þorsteinn snikkari Hjálmarsen frá Hítardal og systursonur hans, Sigurður Hjaltalín Hansson gullsmiður frá Jörfa í Kolbeinsstaðahreppi.  Var íbúðarhús ofar en verslunarhús nær víkinni.  Jafnframt byggði Sigurður íbúðarhús yfir sjálfan sig og sína.  Thordalsverslun komst þó aldrei almennilega á laggirnar og kom þar margt til, erfitt árferði, skipskaðar og bágur efnahagur kaupmannsins.

Árið 1884 fór Þorsteinn snikkari úr víkinni, tók niður íbúðarhúsið og hafði með sér burt.
Sama ár keypti Finnur Finnsson Thordalshúsin og hélt áfram byggingu þeirra.