|
|
Kaupfélagið byggði nýtt skrifstofuhúsnæði ofan á pakkhús sem fyrir var, árið 1943. Halldór H. Jónsson teiknaði húsið en hann var sonur Jóns Björnssonar í Bæ sem um langt árabil rak verslun undir Búðarkletti. Jón hóf verslunarstörf í Englendingavík í Bryde-verslun á síðasta áratug 19. aldar þá ungur maður. |
![]() |