Verslað í Englendingavík

 
Verslun KB í Englendingavík var í gömlu verslunarhúsum Bryde-verslunarinnar, verslunarhúsinu sem Akra-Jón lét byggja á sínum tíma og pakkhúsunum.  Byggt var við það hús nokkrum sinnum, fyrst var íbúðarhluti þess stækkaður en síðan var byggð álma til norðurs og pakkhús við hana.  Auk þess voru byggð ýmis bíslög út úr húsunum.