Gamla Sævarborg og kaupfélagsstjórahúsið

 
Endi Sævarborgar (eða Sjávarborgar) er í einkaeign.  Þar hefur verið nær samfelld búseta síðan húsið var byggt á 9. áratug 19. aldar.  Sá endi hússins sem búið er í er í góðu ásigkomulagi en Hollvinasamtaka Englendingavíkur bíður ærinn starfi áður en verslunarhlutinn verður kominn í viðunandi horf.  Fyrir framan húsin er timburstæða, viðir sem hirtir voru úr gamla sláturhúsinu sem stóð við Suðurneskletta og var rifið síðasta sumar.  Það hús var upphaflega reist af SS árið 1908 en hafði verið breytt mikið eftir að KB keypti húsið um 1930.  

Tjernihús, eða neðra pakkhúsið, er til hægri á myndinni.