Húsin í dag

 
Gömlu verslunarhúsin í Englendingavík mega muna fífil sinn fegri.  Húsin hafa að mestu þjónað sem geymsla kaupfélagsins síðustu rúm 40 ár - það á þó vafalítið stóran þátt í því að þau standa enn þann dag í dag.  Björn Guðmundsson, sem starfaði hjá Kaupfélaginu lengst af langri starfsævi sá um viðhald húsanna meðan hans naut við.  Það má að verulegu leiti þakka ótrúlegri natni og hirðusemi Björns að þessi hluti verslunarsögu Borgarness er enn varðveittur.