Húsin séð frá Skúlagötu í febrúrar 2005

 
Viðgerðir hófust á efra pakkhúsinu í Englendingavík sumarið 2004.  Húsinu var lyft af grunni og komið fyrir ofan við hann.  Þar var gert við húsið en samtímis voru undirstöður þess fjarlægðar og skipt um jarðveg undir þeim.  Þær voru síðan hlaðnar að nýju.  Gert var við húsið haustið 2004 og stóðu viðgerðir fram í desember.  Enn á þó eftir að endurnýja hlera og hurðir og ganga endanlega frá klæðningu hússins. 

Stefán Óalfsson og starfsmenn hans, Loftorka, Njarðtak, Sigurður Arelíusson og félagar í hollvinasamtökunum unnu verkið.