|
|
| Hér er horft í sundið milli efra pakkhússins og verslunarinnar. Búið er að klæða húsið að mestu með nýrri vatnsklæðningu sem smíðuð var sérstaklega eftir þeirri gömlu. Grindin í húsinu var mjög heillleg en það sem gert var við var endurnýjað með viðum sem hirtir voru úr gamla sláturhúsinu sem rifið var síðasta sumar. Vonast er til að viðgerðum hússins verði lokið snemmsumars en ríkissjóður hefur veitt 2 milljónum króna til viðgerða húsanna í víkinni á fjárlögum þessa árs. | ![]() |