| Landnám
Íslands ehf. er fyrirtæki sem stofnað var á síðasta
ári og er í eigu Borgarbyggðar, Kjartans Ragnarssonar
og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur.
Fyrirtækið gekkst á síðasta ári fyrir
því að vörður voru settar upp á söguslóðum
Eglu. Ein þeirra var reist á holti við Granastaði.
Á myndinni er horft yfir Granastaði í átt til
Borgar.
Vörðunni
er ætlað að vísa til Egils þegar hann í
Egilssögu berst með hellur bundnar á bak sér og
brjóst auk þess sem staðsetning þeirra tengir söguna
við sögustaði á Mýrum og í Borgarfirði.
Upphafssíða |
|
 |