|
|
| Í
Egilssögu er sagt frá því að menn Skallagríms
hafi sest að í landnámi Skallagríms. Einn
þessara manna er sagður hafa sest að við Borgarvoginn
utan við Borg. Grani bjó
að Granastöðum í Digranesi segir í Egilssögu.
Sagnir eru um að Granastaðir hafi staðið á holti móts við Sandvík. Þar má enn sjá grónar tóftir og er myndin tekin frá Borgarvoginum af litlu nesi yfir svæðið sem gengur undir nafninu Granastaðir. Hundaþúfa er fremst á myndinni. Rauðir deplar eiga að sýna lága hóla sem að líkindum eru gróin tóftarbrot. Um aldur þeirra er hinsvegar ekki vitað með vissu. Á Granastöðum er nú fyrirhuga að leggja götu og byggja nokkur hús. Því er mikilvægt að fá skorið úr um uppruna rústanna áður en ráðist verður í framkvæmdir á svæðinu. |
![]() |