Hús
var fyrst reist í Borgarnesi svo vitað sé eftir
söguöld, árið 1857. Fyrir því stóð
skoskur maður, James Ritchie. Húsið var byggt
við Brákarpoll og þar var lax soðinn niður sumarið
1857 á vegum þessa skoska athafnamanns. Keypti hann
lax af bændum í Borgarfirði og hafði til flutninga
teinæring sem knúinn var gufuvél.
Hús
þetta stóð þó ekki lengi við Brákarpoll
því sumarið eftir, árið 1858, var það
flutt að ósum Grímsár þar sem það
hélt áfram að þjóna hlutverki sínu
sem niðursuðuhús. Húsið var rifið sumarið
1977. Myndina hér til hliðar tók Bjarni Bachman
af húsinu það sumar.
Ritchie
hætti starfsemi hérlendis árið 1878 en nokkru fyrr
eða árið 1876 reis annað hús í Borgarnesi
undir Miðnesklettum. Þar voru á ferðinni enskir
menn og hefur víkin fram af þessum stað síðan
verið kölluð Englendingavík. Það hús
stóð þó aðeins fá ár við
víkina.
|
|
 |