Finnur
Finnsson keypti verslun Thordals árið 1884 og einnig íbúðarhús
sem stóð nokkru ofan við víkina. Hófst
hann þegar handa við að ljúka smíði verslunarhússins
sem þá var hálfbyggt. Finnur hafði starfað
við verslun Egils Egilssonar í Reykjavík en átti
meðal annars ættir að rekja vestur í Kolbeinsstaðarhrepp.
Kona Finns var systurdóttir Akra-Jóns sem keypti verslunarhúsin
í Englendingavík nokkru eftir að Finnur fór úr
víkinni.
Verslunarrekstur
Finns varð endaslepptur. Hann lauk við smíði verslunarhússins
sem hýsa hafði átt Thordalsverslun sem aldrei komst á
laggirnar. Af heimildum að dæma virðist sem húsið
hafi brunnið til grunna í eldsvoða milli jóla og
nýárs árið 1884. Var byggingu búðarinnar
að mestu lokið en eldur kviknaði í hálmi á
gólfinu undir kvöld. Var eldurinn slökktur en gaus
upp aftur nokkrum tímum seinna og að þessu sinni voru
engir nógu fljótir á vetvang til að forða
því að húsið brynni til grunna. Urðu
það því örlög fyrsta verslunarhússins
í Englendingavík að verða eldsmatur um það
bil sem það var tekið í notkunn.
Finnur
byggði annað hús árið eftir. Var verslun
hans tryggð hjá erlendu tryggingarfélagi og gerði
það honum kleift að byggja annað hús sem enn stendur
neðst í húsaþyrpingunni í víkinni.
Það er nokkur kaldhæðni að í því
húsi kviknaði í upphafi sjöunda áratugarins.
Þá mátti það reyndar muna fífil sinn
fegri því þá var rekið þar hænsnabú.
Var mikil tilviljun að tókst að bjarga húsunum í
Englendingavík í það sinn og vasklegri framgöngu
Björns Guðmundssonar slökkviliðsstjóra og Guðna
Haraldssonar að þakka að vel fór.
Örlög
Finnsverslunar réðust síðari hluta árs 1885.
Tóku þá að berast kröfur um lögtak vegan
ógreiddra skulda og vorið 1886 flutti Finnur með fjölskyldu
sína allslaus til Reykjavíkur. Eignirnar í Englendingavík
voru seldar á uppboði í febrúar veturinn áður
og keypti Daníel Fjelsted bóndi í Hvítárósi
íbúðarhúsið og flutti það heim til
sín. Verslunarhúsið keypti William Tierney, skoskur
gyðingur. Hélt hann einskonar uppboð í húsinu
sumarið 1885 en var aldrei með eiginlegan verlsunarrekstur þar.
Var húsið um stund nefnt eftir honum og kallað Tjernihús.
Virðist
sem lítið hafi verið um umsvif eða mannaferðir í
víkinni veturinn 1886 en það vor dregur svo enn til tíðinda
er Akra-Jón kaupir leifar Finnsverslunar og hefur þar verlsunarrekstur.
|
|
Húsin
í Englendingavík á dögum Bryde- verslunarinnar.
Næst á myndinni er hús frá dögum Finnsverslunar
(seinna Tjerni-hús) en hin húsin eru frá verslunartíð
Akra-Jóns.

Tjernihús
í dag. Grind hússins er orðin léleg en húsið
er enn að mestu í upprunalegu ástandi þó
skipt hafi verið um glugga og hurðir. Hafist verður handa
við endurgerð hússins sumarið 2005. |