Niels
Bryde hafði hagnast á verslun í Vestmannaeyjum fyrir
miðja 19. öld. Sonur hans Johan Peter Thorkelin Bryde var
tekinn við verslunarrekstrinum þegar tók að halla
undan fæti í verslunarrekstri Akra-Jóns í Englendingavík
snemma árs 1889. Tókust samningar með þeim
Jóni og keypti Bryde verslunina og öll hús hans í
Englendingavík. Þar með hófst rekstur Bryde-verslunar
í húsum Akra-Jóns, sem flutti til Reykjavíkur.
Þessi brautryðjandi í verslunarrekstri í Borgarnesi
hélt áfram kaupmennsku í Reykjavík og rak verslun
á Laugarveginum lengst af en hann lést í Reykjavík
árið 1916.
Fyrsti
verslunarstjóri Brydeverslunar var Páll Jóhannesson
frá Kirkjufelli í Grundarfirði. Brydeverslun keypti
síðan Tjernihús af eiganda þess, John Hermitage
sem hafði tekið húsið uppí skuld sem hann átti
við Tierney þann skoska.
Gísli
Jónsson var verslunarstjóri í Bryde-verslun frá
1911. Hann keypti síðan verslunina árið 1913
er Bryde-verslun fór á hausinn og rak hana þangað
til kaupfélagið keypti verslunina.
Meðal
merkismanna sem unnu í verslun Bryde voru þeir Jón
Björnson í Bæ og Jón Björnsson frá
Svarfhóli. Þeir voru umsvifamiklir í verslun
í Borgarnesi á fyrri hluta 20. aldar.