| Borgarnes
(1910) séð af sandeyri á milli Litlu- og Stóru-Brákareyja.
Börnin á myndinni eru Jóhann Gunnar Ólafsson
með rauðmaga og Ingveldur Teitsdóttir til vinstri. Til vinstri
er Vesturbryggja þar uppaf er Brydeverslun, þar ofar pósthúsið
sem brann 1920. Háa húsið er Teitshús, svo Hótelið,
hús Magnúsar Þorbjarnarsonar, fremst við Miðnesbryggjuna
er Salka fyrsta hús KB.
Bændur
lögðu bátum sínum að bryggjunum en borgfirsku
árnar og Borgarfjörður voru helstu samgögnuæðar
til og frá Borgarnesi á meðan staðurinn var að
byggjast í lok 19. aldar og upphafi þeirrar 20. |
|
 |