Stjórn Fjölbrautaskóla Vesturlands


| Skólanefnd | Skólameistari | Aðstoðarskólameistari |
| Áfangastjóri | Fjármálastjóri | Deildarstjórar | Skólaráð |
Fulltrúaráð

Skólanefnd: Samkvæmt lögum um framhaldsskóla (nr. 92 frá 2008) skal menntamálaráðherra skipa fimm manna skólanefnd. Tveir fulltrúar skulu tilnefndir af sveitarstjórnum og þrír skulu skipaðir án tilnefningar. Áheyrnarfulltrúar í skólanefnd eru þrír, einn tilnefndur af kennarafundi, einn af nemendafélagi og einn af foreldraráði.
   Skólameistari og aðstoðarskólameistari sitja fundi skólanefndar.
    - Aðalmenn án tilnefningar eru: Helgi Guðmundsson (formaður), Hjördís Garðarsdóttir og Marta Birna Baldursdóttir.
    - Aðalmenn tilnefndir af fulltrúaráði Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir hönd sveitarfélaga eru: Helena Guttormsdóttir og Ólafur Helgi Haraldsson.
    - Varamenn án tilnefningar eru: Dagbjört Guðmundsdóttir, Davíð Rósenkrans Hauksson og Sigríður Víðis Jónsdóttir.
    - Varamenn tilnefndir af fulltrúaráði Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir hönd sveitarfélaga eru:
Þórdís Þórisdóttir og Borghildur Jósúadóttir.
Áheyrnafulltrúi kennara sem kjörinn var á kennarafundi 19. ágúst 2009 er Anna Bjarnadóttir og varamaður er Eiríkur Guðmundsson.

Fulltrúaráð: Fulltrúaráð skal vera skólanefnd til ráðuneytis um þjónustu skólans á Vesturlandi og vera tengiliður á milli skólanefndar og sveitarfélaga sem eiga aðild að skólanum. Fulltrúaráð Fjölbrautaskólans skal skipað 12 fulltrúum og 12 til vara. Kjörtímabil fulltrúa sveitarfélaga í fulltrúaráði er fjögur ár og fylgir kjörtímabili sveitarstjórna. Skipting fulltrúa eftir sveitarfélögum er sem hér segir: Akranes 5 fulltrúar og 5 til vara; Borgarbyggð 3 fulltrúar og 3 til vara
Dalabyggð 1 fulltrúi og 1 til vara; Eyja- og Miklaholtshreppur 1 fulltrúi og 1 til vara; Hvalfjarðarsveit 1 fulltrúi og 1 til vara; Skorradalshreppur 1 fulltrúi og 1 til vara.
    Halla I. Guðmundsdóttir er áheyrnarfulltrúi kennara í fulltrúaráð skólans og Jón Gunnar Axelsson er til vara. Þau voru bæði kjörin á kennarafundi í ágúst 2010.

Skólameistari er Hörður Ó. Helgason. Skólameistari hefur yfirumsjón með starfsemi skólans, húsum hans og munum og rekstri öllum. Hann ber ábyrgð á að öll starfsemi hans sé í samræmi við lög, reglugerðir og námskrár á hverjum tíma.

Efst á síðu

Aðstoðarskólameistari er Atli Harðarson. Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og honum til aðstoðar við daglega stjórn skólans og rekstur. Hann hefur m.a. umsjón með brautskráningu nemenda. Aðstoðarskólameistari er umsjónarmaður kvöldskóla þegar hann er starfræktur.

Áfangastjóri er Jens Benedikt Baldursson. Áfangastjóri annast námsferilsskráningu, eftirlit með framkvæmd námsvals og úrvinnslu einkunna. Hann annast tölvuvinnslu námsferilsskrár og stundaskrár. Til hans skal leita um breytingar á stundaskrá, svo sem úrsögn úr áfanga og nýskráningu svo og allt er varðar frávik frá eðlilegri skólasókn.

Fjármálastjóri er Guðný Rún Sigurðardóttir. Fjármálastjóri sér um öll fjármál skólans og bókhald. Fjármálastjóri hefur m.a. yfirumsjón með innheimtu þeirra gjalda er nemendum ber að greiða, s.s. innritunargjalda og húsaleigu á heimavist.

Efst á síðu

Deildarstjórar: Deildarstjórar hafa umsjón með kennslu, námsefni og námskröfum í þeim greinum sem falla undir deildarstjórn hvers og eins.  Til þeirra skulu nemendur leita vegna almennra upplýsinga og vandamála er snerta nám í greinum þeirra.  Þeir sjá um námsmat úr öðrum skólum ásamt áfangastjóra og aðstoðarskólameistara.

Deildarstjórar eru:
Bjarnþór G. Kolbeins Stærðfræði, tölvufræði
Eiríkur Guðmundsson Rafiðngreinar
Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir Starfsbraut
Helena Valtýsdóttir Tungumál
Helgi Magnússon Íþróttir
Jón Gunnar Axelsson Íslenska
Sigurgeir Sveinsson Tréiðngreinar og listgreinar
Steinunn Eva Þórðardóttir Samfélags- og viðskiptagreinar
Þorbjörg Ragnarsdóttir Raungreinar, heilbrigðisgreinar
Þröstur Þór Ólafsson Málmiðngreinar

Skólaráð: Skólaráð skipa tveir kjörnir fulltrúar nemenda, tveir kjörnir fulltrúar kennara, skólameistari, aðstoðarskólameistari og áfangastjóri. Ef ástæða þykir til situr námsráðgjafi fundi skólaráðs sem áheyrandi með málfrelsi og tillögurétt. Skólaráð er samstarfsvettvangur stjórnenda, kennara og nemenda og skal fjalla um innri málefni skólans sem ekki eru sérstaklega falin skólameistara einum eða almennum kennarafundi. Skólaráð fjallar m.a. um brot nemenda á skólareglum og um undanþágur frá skólasóknarreglum, auk þess sem það fjallar um ýmis málefni nemenda sem þeir sækja til skólayfirvalda. Sá sem leggur erindi fyrir skólaráð skal vitja um afgreiðslu þess. Skólaráð starfar samkvæmt lögum um framhaldsskóla og reglugerð frá menntamálaráðuneytinu.
    Fulltrúar kennara í skólaráði eru Steingrímur Benediktson (kosinn haust 2009) og Ólöf H. Samúelsdóttir (kosin haust 2010). Varamaður er Ingólfur Ingólfsson (kosinn haust 2010).

 

Efst á síðu