Fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands
haldinn í fundarherbergi skólans þriðjudaginn 6. september
2005 kl. 12:00
Mætt voru:
Þorgeir Jósefsson, formaður skólanefndar
Hörður Helgason, skólameistari
Atli Harðarson, aðstoðarskólameistari
Bergþóra Jónsdóttir
Björn Bjarki Þorsteinsson
Borghildur Jósúadóttir
Sigurgeir Sveinsson, fulltrúi kennara
Forföll boðuðu:
Hólmfríður Sveinsdóttir
Bergþór Ólason
1. Innritun og fjöldi nemenda á haustönn 2005
2. september voru skráðir 610 nemendur í skólann.
Miðað við venjulegt brottfall verða nemendur á önninni
sem samsvara 562 ársnemendum og ársnemendur 2005 verða þá
540.
Skólanefnd lýsir enn einu sinni yfir áhyggjum
sínum með að skólinn fái ekki fjármagn til
að taka á móti öllum nemendum sem sóttu um skólavist.
Þannig að unnt sé að nýta skólahúsnæðið
til fulls.
2. Rekstrarstaða skólans
Skólameistari lagði fram rekstraryfirlit skólans
fyrir fyrstu 7 mánuði ársins. Miðað við yfirlitið
er rekstur skólans í jafnvægi og á áætlun.
3. Byggingamál
Framkvæmdir við nýbyggingu og endurbætur ganga
vel og eru á áætlun.
Formaður kynnti fyrstu hugmyndir um stækkun heimavistar.
Formanni og skólameistara falið að vinna áfram í
málinu.
4. Samstarfsnefnd vegna kjarasamninga kennara.
Fulltrúar skólans í samstarfsnefndinni verða
Hörður Helgason, Atli Harðarson og Samúel Grímsson
Til vara Þorgeir Jósefsson.
5. Önnur mál
a) Breytingar á starfsliði skólans í upphafi
skólaárs 2005 - 2006
Eftirtaldir kennarar láta af störfum:
· Atli Rafn Kristinsson
· Gunnar Haukur Kristinsson
· Hörður Ragnarsson
· Sigtryggur Karlsson
Aðrir sem unnu við skólann á síðasta skólaári
og láta af störfum eru:
· Fjóla V. Bjarnadóttir og
· Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
sem unnu í mötuneytinu.
Eftirtaldir starfsmenn verða í leyfi á skólaárinu:
· Kristbjörg Kjerúlf, starfsmaður í mötuneyti
og ræstingum
· Rúna Björk Gísladóttir, starfsmaður á
skrifstofu
· Þórólfur Ævar Sigurðsson, íþróttakennari
Kennarar sem koma nýir til starfa eru:
· Ásdís Sigurðardóttir, íþróttakennari
sem leysir Þórólf Ævar af.
· Elínborg Halldórsdóttir, stundakennari sem kennir
"Skapandi starf" (SST102) á Félagsmála- og tómstundabraut.
· Eydís Aðalbjörnsdóttir kennari í landafræði
· Ingibjörg Haraldsdóttir, stundakennari sem kennir "Frístundafræði"
(FRÍ103) á Félagsmála- og tómstundabraut.
Aðrir starfsmenn sem ekki voru á síðasta skólaári
eru:
· Edda Einarsdóttir sem leysir Rúnu af á skrifstofu.
· Guðmundur Egill Ragnarsson sem kemur aftur til starfa sem forstöðumaður
mötuneytis eftir árs leyfi.
· Ísabella Lárusdóttir kemur til starfa í
mötuneyti skólans.
b) Skólameistari sagði frá fundi sem hann sat með bæjarráði Borgarbyggðar um hugsanlega stofnun framhaldsskóla í Borgarnesi.
Fundi slitið kl. 13:30
Borghildur Jósúadóttir
fundarritari