Fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands
haldinn í fundarherbergi skólans þriðjudaginn 31. janúar 2006

Mætt voru:
Þorgeir Jósefsson, formaður skólanefndar
Hörður Helgason, skólameistari
Atli Harðarson, aðstoðarskólameistari
Bergþóra Jónsdóttir
Björn Bjarki Þorsteinsson
Guðrún J. Gunnarsdóttir
Ingþór B. Þórhallsson
Lárus Ársælsson
Steinunn Eik Egilsdóttir

1. Rekstrarniðurstaða 2005
Skólameistari kynnti rekstrarniðurstöðu 2005 í samanburði við áætlun 2005 og rauntölur 2004. Eftir er að fara í uppgjör við ráðuneytið um einstök mál.

2. Rekstraráætlun 2006
Skólameistari kynnti drög að rekstraráætlun fyrir 2006. Nefndarmenn samþykktu áætlunina sem sýnir 3,2 mkr. rekstrarafgang. Þetta er nauðsynleg niðurstaða til að mæta kröfu fjármálaráðuneytis um endurgreiðslu 3,0 mkr upp í eldri skuld FVA við ráðuneytið, að kröfu þess.

3. Skólanámskrá FVA
Aðstoðarskólameistari kynnti skólanámskrá FVA. 5. útgáfa 2005. Rætt um einstök atriði hennar s.s. stefnu og sérstöðu FVA.

4. Skóladagatal 2005-2006
Skólameistari kynnti skóladagatal 2005-2006 þar sem uppfyllt er krafa ráðuneytis um 145 kennsludaga og 175 skóladaga, a.m.k. 4 daga utan 9 mánaða tímabils.

5. Önnur mál.
a) Lögð fram endanleg drög að skólasamning milli ráðuneytis og FVA 2006 - 2009.
b) Formaður fór yfir drögin og ræddi ýmis mál. Nefndin samþykkir að heimila skólameistara og formanni að undirrita skólasamninginn. ræða um íþróttatengt nám sem hægt verður að bjóða uppá í tengslum við bætta aðstöðu FVA íþróttaiðkenda á Akranesi. Skólameistari kynnti málið og mun vinna áfram í því.

Fundi slitið kl. 14:00

Lárus Ársælsson
fundarritari.