Fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands
haldinn í fundarherbergi skólans þriðjudaginn 22. mars 2005 kl. 12:00

Mætt voru:
Þorgeir Jósefsson, formaður skólanefndar
Bergþór Ólason
Bergþóra Jónsdóttir
Hólmfríður Sveinsdóttir
Hörður Helgason, skólameistari
Atli Harðarson, aðstoðarskólameistari
Sigurgeir Sveinsson, fulltrúi kennara

Formaður setti fundinn kl. 12:00

1. Uppgjör frá menntamálaráðuneytinu vegna hægferða 2003.
Skólameistari fór yfir forsöguna. Lagt fram bréf frá menntamálaráðuneytinu dagsett 25. febrúar 2005. Einnig lögð fram drög að svarbréfi til ráðherra. Skólanefnd felur formanni og skólameistara að ganga frá bréfinu og senda.

2. Uppgjör frá menntamálaráðuneytinu fyrir árið 2004.
Lagt fram bréf frá menntamálaráðuneytinu dags. 24. febrúar 2005. Þar kemur fram að nemendatala til uppgjörs verði 544. Samkvæmt útreikningum skólans er nemendatala samkvæmt áfangaskrám 565 en sambærileg tala frá ráðuneyti er 558. Er því talsverð skekkja þar sem upphæð nemendauppgjörs pr. nemanda er um 570 þúsund. Formanni og skólameistara falið að fylgja málinu eftir.

3. Ársskýrsla 2004.
Ársskýrsla 2004 lögð fram. Lagður fram, óendurskoðaður, ársreikningur skólamötuneytis fyrir árið 2004.

5. Skólaakstur
Rætt um skólaakstur. Meðal annars rætt hvort bjóða eigi hann út. Ákvörðun frestað fram yfir samráðsfund nokkurra fjölbrautaskóla sem fram fer 23. mars.

6. Önnur mál.
Rætt um lausu skólastofurnar á skólalóðinni, en tvær þeirra hafa verið auglýstar til sölu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:40


Hólmfríður Sveinsdóttir
fundarritari.