Fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands
haldinn í fundarherbergi skólans 20. október
2004 kl. 12:00
Mætt voru:
Hörður Helgason, skólameistari
Atli Harðarson, aðstoðarskólameistari
Bergþór Ólason
Bergþóra Jónsdóttir
Borghildur Jósúadóttir
Hólmfríður Sveinsdóttir
Þorgeir Jósefsson
Jón Ingi Þrastarson, áheyrnarfulltrúi nemenda
Sigurgeir Sveinsson, áheyrnarfulltrúi kennara
Skólameistari bauð fundarmenn velkomna. Síðan var gengið til dagskrár.
1. Skólanefndin kaus sér formann.
Þorgeir Jósefsson var kjörinn einróma.
2. Skólameistari gerði grein fyrir skólastarfi á
haustönn 2004.
Meðal annars gerði hann grein fyrir breytingum á starfsliði
sem urðu í sumar og haust.
Samningi við Listasetur um lán á listaverkum
til skólans., félagsstarfi á vegum nemendafélagsins;
ýmsum atburðum s.s. námsferð nemenda í LÍF223
og LÍF233 Til Gotlands; stærðfræðikeppni; tungumáladeginum
og aðalfundi foreldrafélagsins.
3. Nemendafjöldi á haustönn 2004.
Skólameistari gerði grein fyrir því að í
upphafi annar hefðu verið 627 nemendur í skólanum. Þetta
er meiri fjöldi en miðað er við í fjárveitingum
til skólans. Fjárheimildir miðast við 540 ársnemendur
á árinu 2004 (þar sem ársnemandi er ígildi
35 námseininga). Gögn úr nemendabókhaldi frá
19. október benda til að ársnemendur verði talsvert fleiri
en 540. Sé gert ráð fyrir 6,5% brottfalli á haustönn
verður ársnemendafjöldinn nálægt 567. Miðað
við þessar tölur vantar fé til að kosta kennslu um
27 ársnemenda. Skólameistari sagði frá bréfi
sem hann hefur sent menntamálaráðuneyti vegna þessa.
Skólameistari gerði grein fyrir því að á
fjáraukalögum komi væntanlega viðbótar framlög
til skólanna og von sé til að Fjölbrautaskóli
Vesturlands fái hluta þeirra. Ljóst er að ef ekki fæst
viðbótarframlag vegna kennslu á árinu 2004 verður
umtalsverður halli á rekstri skólans. Þessi vandi hefur
verið kynntur sumum af þingmönnum Norð-Vesturkjördæmis.
4. Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2005.
Skólameistari gerði grein fyrir því að frumvarpið
geri ráð fyrir að ársnemendur árið 2005 verði
540. Áætlanir skólans gera ráð fyrir að aðsókn
að skólanum verði talsvert meiri en fjárlagafrumvarpið
gerir ráð fyrir. Skólameistari sagði frá því
að hann hafi ritað menntamálaráðherra bréf
vegna þessa. (Afriti af þessu bréfi var dreift á fundinum).
Í bréfinu segir skólameistari meðal annars að fjöldi
ársnemenda árið 2005 verði a.m.k. 555. Rætt var
um hvernig best sé að skólanefnd bregðist við þessari
stöðu.
5. Önnur mál.
Skólameistari sagði frá því að menntamálaráðherra
muni heimsækja skólann fimmtudaginn 28. október.
Skólameistari dreifði afriti af skólasamningi
sem gildir fyrir árin 2003 – 2005.
Bergþór spurði hvaða breytingar hafi
verið gerðar á samkomulagi sveitarfélaga um rekstur skólans
þegar sveitarfélögin á norðanverðu Snæfellsnesi
gengu út. Skólameistari og formaður skólanefndar svöruðu
og sögðu að fækkað hefði úr 15 í 12
í fulltrúaráðinu en aðrar breytingar væru
litlar.
Rætt var um tímasetningu skólanefndarfunda
og ákveðið að miða við að þeir verði
á þriðjudögum.
Skólameistari sagði frá nýbyggingu
og gerði grein fyrir að þegar hún verður tilbúin
vanti enn húsnæði fyrir tréiðnadeild og stærri
heimavist. Fram kom í máli skólameistara að 115 hafi
sótt um heimavistarpláss síðasta vor og að þörf
sé fyrir heimsvistarpláss fyrir um þ.b. 100 nemendur.
Fundargerð ritaði
Atli Harðarson