Fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands
haldinn í fundaherbergi skólans þriðjudaginn 18. janúar
2005 kl. 12:00
Mætt voru: Þorgeir Jósefsson, formaður skólanefndar; Hörður Helgason, skólameistari; Atli Harðarson, aðstoðarskólameistari; Hólmfríður Sveinsdóttir; Sigurgeir Sveinsson, fulltrúi kennara; Jón Ingi Þrastarson, fulltrúi nemenda.
Forföll boðuðu: Bergþór Ólason; Bergþóra Jónsdóttir; Borghildur Jósúadóttir.
Formaður setti fundinn.
1. Skólastarf á haustönn 2004
Skólameistari sagði frá starfi haustannar. Sigurgeir sagði
frá samstarfi við Iðnskólann í Reykjavík.
2. Innritun og upphaf vorannar 2005
Tæplega 560 nemendur (í dag 557) eru skráðir og jafngildir
það 553 ársnemum (17.5 ein. pr. önn). Þessi fjöldi
er sambærilegur við síðustu vorönn. Heimild á
fjárlögum fyrir 540 ársnemendur. Verði aðsókn
að skólanum með svipuðum hætti næsta haust og
ekki komi til frekari fjárheimild, liggur fyrir að hafna verður
einhverjum umsóknum um skólavist fyrir næstu haustönn.
3. Bráðabirgðarekstraryfirlit 2004 og fjárhagsáætlun
2005
Skólameistari lagði fram og kynnti bráðabirgðarekstraryfirlit
fyrir árið 2004. Enn á eftir að fara fram endanlegt uppgjör
vegna 2003 og 2004 vegna nemendafjölda. Gangi þau uppgjör eftir
miðað við forsendur skólans er ljóst að rekstraruppgjör
skólans er vel viðunandi.
Skólameistari lagði fram og kynnti rekstraráætlun
fyrir árið 2005. Áætlunin gerir ráð fyrir
að tekjur skólans og gjöld verði í jafnvægi.
Þó er sá óvissuþáttur fyrir hendi að
ósamið er við kennara og fleiri.
4. Nýbygging
Staða framkvæmda. Fimm nýjar kennslustofur á fyrstu
hæð voru teknar í notkun í byrjun vorannar. Byggingin
er á áætlun, bæði tímalega og kostnaðarlega.
Verið er að vinna í 2. hæð. Sú hæð
verður tekin í notkun næsta haust ásamt tengibyggingu
við eldra skólahús.
5. Önnur mál
a)
Lausar kennslustofur. Skólameistari greindi frá að selja þyrfti
"lausu kennslustofurnar" á skólalóðinni.
Skólanefndin samþykkir að heimila skólameistara að
selja þær allar.
b)
Framhald framkvæmdasamnings. Skólanefnd samþykkir að
skólameistari skrifi bréf til menntamálaráðuneytis
og óski eftir viðræðum um framhald framkvæmdasamnings.
c)
Markmið skólastarfs við FVA og niðurstöður mats
á einstökum þáttum þess. Aðstoðarskólameistari
kynnti skýrslu þessa efnis.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:35
Hólmfríður Sveinsdóttir fundarritari.