Fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands
haldinn í fundarherbergi skólans þriðjudaginn 6. febrúar 2007

Mætt voru: Þorgeir Jósefson formaður skólanefndar, Hörður Helgason skólameistari, Atli Harðarson aðstoðarskólameistari, Bergþóra Jónsdóttir, Hólmfríður Sveinsdóttir, Ingþór B. Þórhallsson varamaður, Sigurgeir Sveinsson fulltrúi kennara, Steinunn Eik Egilsdóttir fulltrúi nemenda.

Borghildur Jósúadóttir boðaði ekki forföll.

Formaður skólanefndar setti fundinn, bauð alla velkomna og óskaði nefndarmönnum gleðilegs árs um leið og hann benti þeim á þau tímamót að fyrir 20 árum, í dag, var gerður samningur milli sveitarfélaga á Vesturlandi um rekstur skólans og nafni hans breytt úr Fjölbrautaskólinn á Akranes í Fjölbrautaskóli Vesturlands.
Bar hann því næst upp fyrsta lið á dagskránni sem var:

1. Rekstaraniðurstöður 2006
Skólameistari tók til máls og fór yfir rekstraryfirlit Fjölbrautaskóla Vesturlands í lok árs 2006. Helstu niðurstöður þess eru þær að reksturinn stefnir í að vera lítið eitt jákvæður. Endanlegt uppgjör er væntanlegt.

2. Rekstraráætlun 2007
Skólameistari lagði fram rekstraráætlun fyrir árið 2007. Benti hann á að óvissuþættir væri í rekstri skólans líkt og áður. Áætlunin verður send til menntamálaráðuneytisins til staðfestingar.

3. Skóladagatal. 2006 - 2007
Skólameistari lagði fram og útskýrði.

4. Skólastarf á haustönn 2006 og vorönn 2007
Fyrirliggjandi var yfirlit yfir dagskrá haustannar 2006 og til dagsins í dag. Kom sérstaklega fram að 9 nemendur skólans þreyttu sveinspróf í húsasmíði hér á Akranesi með góðum árangri. Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem það er gert, en undanfarinn ár hafa nemendur farið til Reykjavíkur.
Góður árangur hefur fengist með svokölluðu dreifinámi, en hingað til hefur verið boðið upp á nám í húsasmíði, sjúkraliðabraut og viðskiptabraut.

5. 30 ára afmæli skólans
Undirbúningur að afmælishaldinu er hafinn en eftir er að fullskipa nefnd sem kemur að afmælishaldinu. Skólanefndinni er ætlað að finna a.m.k. einn fulltrúa í þá nefnd fyrir næsta fund.

6. Önnur mál
Formaður skólanefndar greindi frá stöðu mála gagnvart nýrri byggingu fyrir tréiðngreinar á lóð skólans.

Fundi slitið kl. 13:30

Ingþór B. Þórhallsson
fundarritari