Nýting kennslu á vorönn 2005
Viðmið menntamálaráðuneytis gera ráð fyrir að nemendafjöldi á hvern kennara í námshópum sé sem hér segir:
Almennar bóklegar greinar og íþróttir (BÓK) 25 Fagbóklegir áfangar (FBL) 15 Áfangar í fornámi, þ.e. með millitölu 9 (FOR) 15 Hægferðir (HÆG) 25 Listgreinar (LIS) 15 Raungreinar (RAU) 20 Samkenndir áfangar, þ.e. þar sem tveir eða fleiri kennarar kenna saman (SAM) 18 Tölvufræði og upplýsingatækni (TÖL) 15 Áfangar í verklegu námi (VEL) 12 Reiknilíkan menntmálaráðuneytisins gerir ráð fyrir að hópastærðir við lok annar séu að jafnaði ekki undir 77,46% af þeim tölum sem lesa má hér að ofan. Þetta er stundum orðað svo að nýtingarkrafa ráðuneytisins sé 77,46%. Frá þessu er þó sú undantekning að ráðuneytið gerir aðeins kröfu um 65,84% nýtingu á kennslu í fornámsáföngum (þar dugar sem sagt að nemendafjöldi sem lýkur hverjum áfanga sé 65,84% af 15).
Þann 17. janúar 2005 var fjöldi nemenda á hvern kennara í námshópum við Fjölbrautaskóla Vesturlands að jafnaði 84,63% af þessum viðmiðunartölum eða nokkru ofan við nýtingarkröfu ráðuneytisins sem var að jafnaði 77,09% (þ.e. 65,84% í fornámsáföngum og 77,46% í öllum öðrum áföngum). Á önninni hættu 26 nemendur í skólanum. Þessir 26 nemendur voru í samtals 395 einingum við upphaf annar. Til viðbótar við þetta skráðu 66 nemendur sig úr samtals 235 einingum. Þessar úrsagnir jafngilda því að um það bil 36 nemendaígildi (þ.e. nemendur í 17,5 eininga námi) hafi hætt í skólanum. Úrsagnir nemenda úr skóla og úr einstökum áföngum urðu til þess að námshópar minnkuðu að meðaltali um 6,50% svo nýtingin við lok annar var um það bil 79,13% (þ.e. 93,50% af 84,63%).
Hér að neðan er nýting kennslu, við upphaf annar, sundurliðuð eftir deildum:
Nýting
Meðalfjöldi nemenda
á hvern kennara
í kennslustundumErlend tungumál 87,23% 21,5Íslenska 90,20%21,9
Íþróttir 81,41% 23,6Málmiðnagreinar 82,11% 10,6Rafiðnir 73,58% 9,1Raungreinar 91,64% 14,7Samfélagsgreinar 93,39% 23,6Stærðfræði 81,49% 18,8Tréiðnagreinar 71,69% 9,6Viðskiptagreinar 89,16% 18,7Ath. í einnar einingar áföngum í íþróttum eru kenndar þrjár vikustundir en ekki tvær og lækkar þetta nýtinguna í íþróttum.
Markmið skólans eru að
a) í öllum greinaflokkum sé nýting kennslu fyrir ofan 77,46% við upphaf annar og
b) niðurstaða fyrir skólann í heild sé ofan við þessi mörk við lok annar.Á vorönn 2005 náðist markmið b en markmið a náðist ekki því nýting kennslu í rafiðnum og tréiðnagreinum var undir mörkum.