Nýting kennslu á haustönn 2004

Viðmið menntamálaráðuneytis gera ráð fyrir að nemendafjöldi á hvern kennara í námshópum sé sem hér segir:
 
Almennar bóklegar greinar og íþróttir (BÓK) 25
Fagbóklegir áfangar (FBL) 15
Áfangar í fornámi, þ.e. með millitölu 9 (FOR) 15
Hægferðir (HÆG) 25
Listgreinar (LIS) 15
Raungreinar (RAU) 20
Samkenndir áfangar, þ.e. þar sem tveir eða fleiri kennarar kenna saman (SAM)  18
Tölvufræði og upplýsingatækni (TÖL) 15
Áfangar í verklegu námi (VEL) 12

Reiknilíkan menntmálaráðuneytisins gerir ráð fyrir að hópastærðir við lok annar séu að jafnaði ekki undir 77,46% af þeim tölum sem lesa má hér að ofan. Þetta er stundum orðað svo að nýtingarkrafa ráðuneytisins sé 77,46%. Frá þessu er þó sú undantekning að ráðuneytið gerir aðeins kröfu um 65,84% nýtingu á kennslu í fornámsáföngum (þar dugar sem sagt að nemendafjöldi sem lýkur hverjum áfanga sé 65,84% af 15).
    Þann 2. september 2004 var fjöldi nemenda á hvern kennara í námshópum við Fjölbrautaskóla Vesturlands að jafnaði 89,09% af þessum viðmiðunartölum eða nokkru ofan við nýtingarkröfu ráðuneytisins sem var að jafnaði 76,82% (þ.e. 65,84% í fornámsáföngum og 77,46% í öllum öðrum áföngum). Á önninni hættu 34 nemendur í skólanum. Þessir nemendur voru í samtals 466 einingum við upphaf annar. Til viðbótar við þetta skráðu 87 nemendur sig úr samtals 257 einingum. Þessar úrsagnir jafngilda því að um það bil 41 nemendaígildi (þ.e. nemendur í 17,5 eininga námi) hafi hætt í skólanum. Úrsagnir nemenda úr skóla og úr einstökum áföngum urðu til þess að námshópar minnkuðu að meðaltali um 6,94% svo nýtingin við lok annar var um það bil 82,91% (þ.e. 93,06% af 89,09%).
    Hér að neðan er nýting kennslu, við upphaf annar, sundurliðuð eftir deildum:

  

Nýting  

Meðalfjöldi nemenda 
á hvern kennara 

í kennslustundum
Erlend tungumál
88,74%
21,3
Íslenska
95,00%

22,9

Íþróttir
88,59%
26,3
Málmiðnagreinar
89,21%
11,5
Rafiðnir
80,22%
10,1
Raungreinar
95,01%
17,8
Samfélagsgreinar 
98,42%
25,8
Stærðfræði
81,09%
18,6
Tréiðnagreinar
83,36%
11,8
Viðskiptagreinar
92,06%
17,7

Ath. í einnar einingar áföngum í íþróttum eru kenndar 3 vikustundir en ekki tvær og lækkar þetta nýtinguna í íþróttum niður fyrir 100% þótt hópar þar séu að jafnaði meira en 25 manna.

Markmið skólans er að í öllum greinaflokkum sé nýting kennslu fyrir ofan 77,46% við upphaf annar og niðurstaða fyrir skólann í heild sé ofan við þessi mörk við lok annar. Á haustönn 2004 náðist þetta markmið.