Bóknámsbrautir til stúdentsprófs
Bóknámsbrautir við Fjölbrautaskóla Vesturlands eru: Félagsfræðabraut (FÉ); málabraut (MB); náttúrufræðibraut (NÁ). Einnig er hægt að ljúka stúdentsprófi með viðbótarnámi eftir nám á öðrum námsbrautum.
Nemandi sem innritast á bóknámsbraut skal hafa lokið námi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla og útskrifast með einkunnir sem eru að lágmarki eins og taflan sýnir.
Heimilt er að veita nemendum sem hafa góða einkunn fyrir ástundun undanþágu þótt þeir hafi of lága einkunn í einni grein.
Nemandi sem ekki uppfyllir inntökuskilyrði á bóknámsbrautir til stúdentsprófs getur öðlast rétt til að hefja nám á þeim með því að ljúka fyrst almennri námsbraut við skólann og áföngum númer 102 eða 103 í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði eða almenri námsbraut - tæknilínu.
danska
enskaíslenska stærð-
fræðináttúru-
fræðisamfélags-
fræðifélagsfræðabraut
5 6 6 5 5 6málabraut
6 6 6 5 5 5náttúrufræðibraut 5 5 6 6 6 5Ekki eru formleg inntökuskilyrði í viðbótarnám til stúdentsprófs eftir starfsnám.
Stúdentspróf af bóknámsbraut veitir rétt til að hefja háskólanám í fjölmörgum greinum. Einstakir háskólar og háskóladeildir setja þó skilyrði um samsetningu náms. Nemendum er bent á að kynna sér vel inntökuskilyrði í háskólanám sem þeir hyggjast stunda að loknu stúdentsprófi.
Um val milli bóklegra greina
Á bóknámsbrautunum er val nemenda 18 einingar. Þar af verða 9 einingar að vera í bóklegum greinum sem eru bókfærsla, danska, eðlisfræði, efnafræði, enska, félagsfræði, franska, hagfræði, heimspeki, íslenska, jarðfræði, landafræði, líffræði, saga, sálfræði, stærðfræði, tölvufræði, uppeldisfræði, upplýsingatækni, viðskiptafræði og þýska.