Inntökuskilyrði á námsbrautir og í áfanga
Allir sem lokið hafa námi í grunnskóla eða öðru jafngildu námi eiga kost á að hefja nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Inntökuskilyrði á einstakar brautir eru talin upp hér á eftir.
Nemendur, sem hafa náð 18 ára aldri, geta sótt um inngöngu á einstakar brautir þótt þeir uppfylli ekki eftirtaldar lágmarkskröfur um námsárangur við lok grunnskóla.
Auk inntökuskilyrða á námsbrautir eru undanfarakröfur í einstaka áfanga. Inntökuskilyrði í nokkra áfanga með númer sem byrja á 1 eru talin upp hér að neðan. Nemandi sem uppfyllir formleg inntökuskilyrði á námsbraut getur þurft að taka fornámsáfanga í einstökum námsgreinum áður en hann hefur nám í þeim samkvæmt brautarlýsingu.
Starfstengdar námsbrautir
Starfstengdar námsbrautir við Fjölbrautaskóla Vesturlands eru: félagsmála- og tómstundabraut (FT); grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina (GBM); grunnnám málmiðnagreina (MG); grunnnám rafiðna (GR); húsasmíði (HÚ8); íþróttabraut (ÍÞ); rafvirkjun (RK8 og RK9); sjúkraliðabraut (SJ); stóriðjubraut (STB); tölvufræðibraut (TFB); vélstjórnarbraut 1. stig (VV1), vélvirkjabraut (VS8); viðskiptabraut (VI).
Nemandi sem innritast á starfsnámsbraut skal hafa lokið námi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla og útskrifast með einkunn 5 eða hærri í íslensku og stærðfræði.
Nemandi sem ekki uppfyllir þessi skilyrði getur öðlast rétt til að hefja nám á starfsnámsbrautum með því að ljúka fyrst almennri námsbraut við skólann.
Á sumum starfsnámsbrautum er aðeins unnt að taka við takmörkuðum nemendafjölda. Ef ekki er hægt að veita inngöngu öllum umsækjendum sem uppfylla ofangreind inntökuskilyrði þá er höfð hliðsjón af einkunn fyrir ástundun eða skólasókn, og námsárangur í öðrum greinum þar sem það á við, þegar valið er milli umsækjenda.
Bóknámsbrautir til stúdentsprófs
Bóknámsbrautir til stúdentsprófs við Fjölbrautaskóla Vesturlands eru: félagsfræðabraut (FÉ); málabraut (MB); náttúrufræðibraut (NÁ); viðskipta- og hagfræðibraut (VH). Einnig er hægt að ljúka stúdentsprófi með viðbótarnámi eftir starfsnám (VSS).
Nemandi sem innritast á bóknámsbraut skal hafa lokið námi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla og útskrifast með einkunnir sem eru að lágmarki eins og taflan sýnir.
Heimilt er að veita nemendum sem hafa góða einkunn fyrir ástundun undanþágu þótt þeir hafi of lága einkunn í einni grein.
Nemandi sem ekki uppfyllir inntökuskilyrði á bóknámsbrautir til stúdentsprófs getur öðlast rétt til að hefja nám á þeim með því að ljúka fyrst almennri námsbraut við skólann og áföngum númer 102 eða 103 í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði.
danska
enskaíslenska stærð-
fræðináttúru-
fræðisamfélags-
fræðifélagsfræðabraut
5 6 6 5 5 6málabraut
6 6 6 5 5 5náttúrufræðibraut
5 5 6 6 6 5viðskipta- og hagfræðibraut 5 6 6 6 5 5Ekki eru formleg inntökuskilyrði í viðbótarnám til stúdentsprófs eftir starfsnám.
Listnámsbraut
Nemandi sem innritast á listnámsbraut skal hafa lokið námi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla og útskrifast með einkunn 5 eða hærri í íslensku og stærðfræði. Nemandi þarf að hafa lagt stund á listnám í grunnskóla eða sérskóla eða geta sýnt með öðrum hætti að námið henti honum.
Almenn námsbraut
Þeir sem ekki uppfylla ofangreind skilyrði til inntöku á aðrar námsbrautir eiga kost á að hefja nám á almennri námsbraut (AN).
Inntökuskilyrði í áfanga
Auk inntökuskilyrða á námsbrautir, sem fjallað er um hér fyrir ofan, eru í gildi inntökuskilyrði eða undanfarakröfur í einstaka áfanga. Meðal annars eru inntökuskilyrði í eftirtalda áfanga með númer 102, 103, 113 og 123 sem hér segir:
DAN 102: Einkunn 5,0 – 6,9 i dönsku á grunnskólaprófi eða DAN 193. DAN 103: Einkunn 7,0 – 10 í dönsku á grunnskólaprófi. ENS 102: Einkunn 5,0 – 6,9 í ensku á grunnskólaprófi eða ENS 193. ENS 103: Einkunn 7,0 – 10 í ensku á grunnskólaprófi. FÉL 103: Einkunn 5,0 í samfélagsgreinum á grunnskólaprófi eða SAB 193. HAG 103: Einkunn 5,0 í samfélagsgreinum á grunnskólaprófi eða SAB 193. HAG 113: Einkunn 5,0 í samfélagsgreinum á grunnskólaprófi eða SAB 193. ÍSL 102: Einkunn 5,0 – 6,9 í íslensku á grunnskólaprófi eða ÍSL 193 og ÍSL 293. ÍSL 103: Einkunn 7,0 – 10 í íslensku á grunnskólaprófi. NÁT 103: Einkunn 5,0 í náttúrufræði á grunnskólaprófi eða STÆ 103 eða STÆ 102 og STÆ 122. NÁT 113: Einkunn 5,0 í náttúrufræði á grunnskólaprófi eða STÆ 103 eða STÆ 102 og STÆ 122. NÁT 123: Einkunn 5,0 í náttúrufræði á grunnskólaprófi eða STÆ 103 eða STÆ 102 og STÆ 122. SAG 103: Einkunn 5,0 í samfélagsgreinum á grunnskólaprófi eða SAB 193. SÁL 103:
Einkunn 5,0 í samfélagsgreinum á grunnskólaprófi eða SAB 193. STÆ 102: Einkunn 5,0 – 6,9 í stærðfræði á grunnskólaprófi eða STÆ 193 og STÆ 293. STÆ 103: Einkunn 7,0 – 10 í stærðfræði á grunnskólaprófi. UPP 103: Einkunn 5,0 í samfélagsgreinum á grunnskólaprófi eða SAB 193.