Mat á ýmislegu námi og störfum
Mat á námi úr öðrum framhaldsskólum
Ef nemandi hefur stundað nám við annan framhaldsskóla sem starfar samkvæmt aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins getur hann fengið áfanga sem hann hefur lokið þar metna svo framarlega sem áfangarnir eru skilgreindur hluti af námsbraut sem hann er skráður á við Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Nemandi getur sótt um að fá nám metið þótt um sé að ræða áfanga sem hann tekur við aðra skóla eftir að hann innritast í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þegar slíkar umsóknir eru afgreiddar er miðað við eftirfarandi:
- Ef um er að ræða kjarnafög á braut skal nemandi gangast undir námsmat við Fjölbrautaskóla Vesturlands í lokaáföngum. Frá þessu má þó gera undantekningu ef um er að ræða námsgreinar sem ekki eru kenndar við skólann.
- Aðeins skal meta áfanga sem nemandi getur ekki með vandræðalausum hætti (þ.e. án árekstra í töflu eða án þess að fresta námslokum) numið við Fjölbrautaskóla Vesturlands.
- Að jafnaði eru áfangar sem nemandi tekur í fjarnámi því aðeins metnir að nemandi gangist undir lokapróf sem er á ábyrgð framhaldsskóla.
Þess er getið á prófskírteini ef nám er metið úr öðrum skólum.
Mat á ýmsum námskeiðum, óformlegu námi og starfsreynslu
- Nemandi sem náð hefur 23 ára aldri getur fengið reynslu sem hann hefur aflað sér eftir 18 ára aldur metna til eininga. Slíkar einingar geta bæði komið í stað kjarnaáfanga í íþróttum og lífsleikni og í staðinn fyrir frjálst val á námsbraut.
- Nemendur sem orðnir eru 23 ára gamlir, hafa náð góðum árangri í sérgreinum á starfstengdri námsbraut og vilja flýta námslokum eiga þess kost að semja við skólameistara um að reynsla eða óformlegt nám komi að hluta í stað annarra almennra námsgreina en lífsleikni og íþrótta. Slíkt samkomulag gildir að jafnaði einungis vegna námsloka á einni braut en ekki ef nemandinn fer síðan í áframhaldandi nám, til dæmis viðbótarnám til stúdentsprófs eða nám til iðnmeistaraprófs.
- Nemendur sem ekki falla undir liði a og b hér að ofan en hafa aflað sér kunnáttu, færni eða þekkingar með störfum, á námskeiðum eða með þátttöku í listum og félagslífi geta sótt um að fá þá menntun metna til eininga. Að jafnaði er við það miðað að slíkt nám sé þá aðeins metið að það flýti fyrir útskrift af námsbrautinni sem nemandi er skráður á.
Mat á námi við tónlistarskóla
Nemendur sem ljúka framhaldsprófi tónlistarskóla geta fengið námið metið sem fullgilt kjörsviðsnám á listnámsbraut, þ.e. 45 einingar. Sama gildir um þá sem lokið hafa fullgildum miðprófum í tveimur tónlistargreinum og framhaldsprófi í tónfræðigreinum.
Hafi nemandi áður lokið grunnprófi tónlistarskóla að fullu er tónlistarnám hans á miðstigi eða ofar metið til allt að 12 eininga á kjörsviði bóknámsbrauta.
Nemendur sem stundað hafa nám í hljóðfæraleik, söng og tónfræðigreinum á grunnstigi tónlistarskóla geta sótt um að fá það metið sem allt að 8 einingar af frjálsu vali á námsbraut sinni.Til grunnstigs tónlistarskóla teljast áfangarnir: HFL102, HFL202, HFL302. (Þótt þessir áfangar séu samtals aðeins 6 einingar geta nemendur lokið meira en 6 einingum á grunnstigi með því að taka einhverja þeirra á tvö mismunandi hljóðfæri.)
Til miðstigs teljast áfangarnir: HFL404, HFL504, HFR102, HFR202, TÓH101, TÓH201, TÓS102, TÓS202.
Til framhaldsnáms teljast áfangarnir: HFL606, HFL706, HFR302, HFR402, TÓH301, TÓH401, TÓS302.
Mat á þjálfun hjá íþróttafélagi
Þjálfari nemanda sem æfir að jafnaði 6 sinnum í viku, eða oftar, hjá íþróttafélagi sem ÍSÍ viðurkennir getur sótt um að nemandinn sé undanþeginn vissum áföngum eða áfangahlutum í íþróttum.
Í upphafi annar þarf nemandi að skila til skólans æfingaáætlun frá þjálfara þar sem greinilega kemur fram hvernig æfingum verður hagað á önninni. Sé umsóknin samþykkt skal nemandi skila staðfestingu frá þjálfara í lok annar þar sem fram kemur að nemandinn hafi stundað æfingar eins og æfingaáætlun gerði ráð fyrir. Að jafnaði er slík undanþága aðeins veitt nemanda sem lokið hefur áföngunum ÍÞR102 og ÍÞR202.
Skólameistari ákveður, í samráði við deildarstjóra í íþróttum, hvort og að hve miklu leyti beri að meta þjálfun íþróttamannsins svo að hún komi að hluta í stað íþróttakennslu skólans.
Að hámarki geta nemendur fengið eina námseiningu metna, vegna þjálfunar sinnar, fyrir hverja önn, þó aldrei fleiri en átta einingar.
Mat á þátttöku í félagsstörfum á vegum nemendafélags
Skólaráð ákveður í lok hverrar annar, að fengnum tillögum frá stjórn nemendafélags, hvaða nemendur fá einingar fyrir störf að félagsmálum á vegum nemendafélagsins.
Að jafnaði er við það miðað að þeir sem leggja af mörkum verulega vinnu fyrir nemendafélagið geti fengið á bilinu 1 til 3 einingar á skólaári.