Um nám og námsframvindu

Nemendur við Fjölbrautaskóla Vesturlands hafa talsvert val um námshraða en almennt er miðað við að nemendur í bóklegu námi sæki um það bil 36 kennslustundir á viku auk íþrótta, þ.e. 6 áfanga sem eru kenndir í 4 klukkustundir (=6 kennslustundir) og einn íþróttaáfanga sem er kenndur í 2 til 3 klukkustundir (=3 til 4,5 kennslustundir) í viku. Nemendur sem hafa staðið sig mjög vel í námi geta í sumum tilvikum tekið meira og á iðnbrautum eru vikulegar kennslustundir í mörgum tilvikum fleiri en 36.
 

Helstu námskröfur við Fjölbrautaskóla Vesturlands

  1. Frá og með annarri önn skal nemandi ljúka a.m.k. 9 einingum á önn eða ná fullnægjandi námsárangri í því sem svarar 18 kennslustundum á viku. Takist nemanda það ekki telst hann fallinn á önninni.
  2. Skólanum er ekki skylt að endurinnrita nemanda hafi hann fallið á tveimur önnum í röð.
  3. Nemanda er heimilt að þreyta próf þrívegis í sama áfanga. Falli hann í sama skylduáfanga í þriðja sinn er hægt að gera honum að endurtaka undanfara áfangans. Nemanda er þó heimilt að undangengnu samráði við námsráðgjafa að sækja um setu í áfanga í fjórða sinn til skólaráðs.
  4. Reglulegt nám til stúdentsprófs skal taka 11 annir mest og reglulegt tveggja ára nám 7 annir mest.
  5. Ef fall á lokaprófi í einum áfanga kemur í veg fyrir að nemandi geti útskrifast skal honum leyft að endurtaka próf í þeim áfanga í lok sömu annar. Þetta ákvæði á ekki við um próflausa áfanga.
  6. Til að standast próf í áfanga og fá leyfi til að hefja nám í eftirfarandi áfanga þarf lágmarkseinkunn 5. Þó er nemanda heimilt að útskrifast með einkunnina 4 ef um lokaáfanga eða stakan áfanga er að ræða. Þeir áfangar gefa ekki einingar.

Skólaráð getur veitt undanþágur frá ofantöldum ákvæðum.
  

Fjarnám

Um fjarkennslu við Fjölbrautaskóla Vesturlands gilda eftirtalin viðmið:

a) Þjónusta skólans við nemendur:

b) Kröfur sem skólinn gerir til nemenda í fjarnámi:

Sumir námsáfangar eru þess eðlis að þá er ekki unnt að stunda í fjarnámi.
    Heimilt er að innheimta gjald af nemendum sem stunda fjarnám umfram venjulegt innritunargjald.
    Nemendur taka oftast sömu lokapróf og nemendur sem sækja kennslustundir. Lokapróf eru haldin í desember og maí. Vægi prófa og annarra námsþátta í lokaeinkunn getur þó verið annað en hjá nemendum sem sækja kennslustundir.
    Þurfi nemandi að taka próf annars staðar en á Akranesi skal hann sækja um það 4 vikum áður en prófatímabil hefst. Þurfi nemandi að taka próf utan hefðbundins próftíma sækir hann um það með sama fyrirvara. Nemandi má eiga von á að þurfa að greiða sérstaklega fyrir hið síðarnefnda.

 

Undanfarabrot

Nemandi sem getur útskrifast í lok annar, með því að ljúka 25 einingum hið mesta, má sækja um heimild til að taka lokaáfanga greinar og undanfara hans saman á þeirri önn.
    Þegar að prófum kemur þarf nemandinn að standast undanfarann áður en próf í lokaáfanganum er tekið, eða endanlegt námsmat hefur farið fram. Falli nemandi í undanfara má hann ekki endurtaka próf í honum. Hann tekur þar með ekki próf í lokaáfanganum og fær ekki einkunn.
    Frávik frá reglum um undanfara eru að jafnaði aðeins veitt ef þau eru nauðsynleg til að áform um útskrift fái staðist og nemandi hefur staðið sig vel í námsgrein eða greinaflokki sem áfangi tilheyrir.
 

Árekstrarheimild

Árekstrarheimild er veitt nemanda í reglulegu námi þegar áfangar, sem hann verður að stunda á viðkomandi önn, rekast á í töflu hans. Ástæður verða að vera gildar, svo sem að annars tefjist útskrift nemandans.
    Nemandi verður að ráðgast við kennara viðkomandi áfanga ekki síðar en viku eftir að árekstrarheimildin hefur verið samþykkt, annars fellur hún úr gildi.
    Nemandi skal sækja kennslustundir í árekstri samkvæmt samkomulagi við kennara þannig að hann geti fylgst með og tekið þátt í verkefnum. Ef nauðsynlegt er að breyta út af fyrirfram ákveðinni mætingarreglu þarf nemandi að semja um það við viðkomandi kennara. Nemandi með árekstrarheimild á ekki að þurfa, fremur en nemar með reglulega tímasókn, að leita til kennara utan kennslustunda og hann á ekki rétt á kennslu eða leiðsögn utan kennslustunda.
    Kennarar skrá fjarvistir hjá nemendum þegar þeir eru fjarverandi vegna áreksturs. Áfangastjóri leiðréttir slíkt eftir á. Nemendum með árekstrarheimild er eindregið ráðlagt að halda nákvæmt bókhald yfir fjarvistir sínar.
 

Undanþágur frá einstökum námsgreinum eða áföngum

Fatlaðir nemendur og nemendur með lestrar- og skriftarörðugleika eða aðra staðfesta skynjunarörðugleika geta sótt um undanþágu til skólameistara frá einstökum námsáföngum enda sé fullreynt að mati skóla að nemandinn geti ekki náð tökum á námsefninu vegna skilgreindra annmarka sem sérfræðingur á viðkomandi sviði hefur staðfest. Nemendur skulu þó taka aðra áfanga í stað þeirra sem þeir fá undanþágu frá.
    Nemendur geta einnig sótt um undanþágu til skólameistara frá einni námsgrein ef þeir eiga við það mikla námsörðugleika að stríða að þeir geta ekki náð tökum á námsefninu þrátt fyrir endurteknar tilraunir. Slíkir námsörðugleikar skulu staðfestir af sérfræðingi á viðkomandi sviði. Nemendur sem fá undanþágu samkvæmt þessu skulu þó taka aðra grein í staðinn.
    Áður en undanþága er veitt skal skólameistari gera nemendum grein fyrir því að undanþágan gæti skert möguleika þeirra til náms í skólum á háskólastigi eða möguleika til starfa á viðkomandi starfssviði ef um starfsnám er að ræða.
    Á prófskírteini nemenda skal gera sérstaka grein fyrir undanþágum sem veittar eru samkvæmt framansögðu
 

Nemendur sem eiga annað móðurmál en íslensku eða hafa gengið í skóla utan Norðurlanda

Nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku eiga rétt á kennslu í íslensku sem öðru máli (ÍSA) samkvæmt sérstakri námskrá. Nemendur sem hafa dvalið utan Norðurlanda á grunnskólaaldri geta sótt um að taka annað tungumál í staðinn fyrir Norðurlandamál.
   

Um setu nemenda í áföngum sem þeir hafa þegar staðist

Ef nemandi óskar að sitja aftur í áfanga sem hann hefur þegar staðist er honum það heimilt með samþykki deildarstjórafundar. Gangist nemandinn undir próf eða fullnaðarnámsmat í áfanganum gildir nýrri einkunnin.