Leitir í gagnagrunnum


Gagnasafn Morgunblaðsins | Britannica alfræðiritið á netinu | ProQuest gagnasafnið


Gagnasafn Morgunblaðsins

Í Gagnasafninu er hægt að leita uppi greinar úr Morgunblaðinu frá 1986 til dagsins í dag; greinar í fullri lengd frá 1994.

Leitarmöguleikar í Gagnasafninu eru tvenns konar:
Efnisleit: Notað er venjulegt málfar eða spurningar t.d. : „Greinar um sjávarútvegsmál þar sem fjallað er um kvótaeign og kvótasölu”.
Orðaleit: Leitað er með því að slá inn eitt eða fleiri leitarorð/efnisorð og hægt að velja hvort greinin á að innihalda öll orðin, eitt orðanna eða orðin saman t.d. kvótaeign, kvótasala, sjávarútvegsmál.
Útdráttur birtist úr hverri grein og smellt er á "Meira" til að fá alla greinina upp á skjáinn. Einnig er hægt að smella á "Tengdar greinar", en þegar grein er skoðuð er oft stungið upp á öðrum greinum í Gagnasafninu sem tengjast þeirri grein efnislega, séu þær fyrir hendi. Hægt er að takmarka leitina við ákveðið tímabil og/eða við tegund greinar s.s. forsíðugrein, aðsent efni, miðopna o.s.frv. Til að prenta út er mælt með að nota "Prentvæn útgáfa" sem er neðst í hverri grein.Bókasafn FVA er áskrifandi að Gagnasafninu og er notkun þess gjaldfrjáls innan veggja skólans. Einstaklingar geta gerst áskrifendur eða keypt stakar greinar annað hvort með kreditkorti eða með GSM síma en þá eru kaup greinarinnar gjaldfærð á símreikning viðkomandi.

Britannica alfræðisafnið á netinu

Britannica online er alfræðisafn á ensku sem er öllum Íslendingum ókeypis til afnota. Þetta alfræðisafn er án efa langbesti kosturinn þegar finna á ítarlegar og áreiðanlegar upplýsingar um ákveðið atriði eða merkt fólk, en efnisgreinar eru skrifaðar af færustu sérfræðingum á hverju sviði s.s. Einstein, Freud. Þarna er að finna rúmlega 350.000 greinar af áreiðanlegum upplýsingum á sviði sögu, vísinda og stærðfræði, bókmennta og heimspeki, sem uppfærðar eru reglulega. Vert er að benda sérstaklega á yfirgripsmiklar greinar um lönd heimsins undir yfirskriptinni "World Atlas" á forsíðunni.

Britannica online inniheldur einnig safn valdra vefsíðna á Internetinu sk. Internet directory. Þar er að finna 200.000 vefsíður sem metnar hafa verið af sérfræðingum á viðk. sviði. Hægt er að leita sérstaklega í þessu vefsíðusafni (Britannica Internet Guide), en þegar leitað er í alfræðisafninu fylgir alltaf listi yfir vefsíður viðkomandi leitarorðinu.

Britannica online hefur að geyma ensk-enska orðabók, Merriam-Webster, þar sem hægt er að fletta upp og fá útskýringar á merkingu orða og hugtaka, á samheitum, hljóðfræði og framburði jafnvel þó innslegið orð hafi ekki verið rétt stafsett.

NB munið að hafa alltaf hakað við "Not sure of the spelling" þegar slegið er inn leitarorð - þá birtir leitarvélin alla möguleika þó ekki sé rétt stafsett.


ProQuest

ProQuest er gagnasafn á ensku sem stendur Íslendingum til ókeypis afnota.

ProQuest inniheldur fjölda gagnagrunna á sviði lista, viðskipta, heilsu- og læknisfræði, sögu, bókmennta og tungumála, tækni og vísinda, félagsvísinda, frétta og fjölmiðla. Í ProQuest er að finna allan texta yfir 4600 tímarita.

Leiðbeiningar um leitir í ProQuest

- Á fyrstu síðunni sem opnast í ProQuest er yfirlit yfir alla gagnagrunna sem eru í gagnasafninu. Sjálfgefin leit er einföld leit í öllum gagnagrunnum, en hægt er að leita í einstökum gagnagrunnum, einum eða fleiri í ítarleitinni "Advanced search".

- Mælt er með að hafa hakað við "Full text" sem skilar aðeins greinum í fullri lengd (þ.e. skilur frá greinar þar sem er t.d. einungis útdráttur). Einnig er skynsamlegt að haka við "Peer reviewed" sem eru ritrýndar greinar.

- Í "Advanced search" er hægt að þrengja leitir á fjölda vegu; s.s. takmarka við tegund rits, tungumál, kyn og að sjálfsögðu gagnagrunna.

- Í niðurstöðum má sjá hvort greininni fylgir einungis útdráttur, eða útdráttur og greinin í fullri lengd og hvort hún er á pdf formi.

- Á skjámynd niðurstöðulistans eru einnig möguleikar s.s. að prenta út og/eða senda grein / -ar í tölvupósti, vista. Einnig er boðið upp á að fá nákvæma heimildaskráningu valdra greina, eða flytja heimildaskráninguna í heimildaskráningarforrit.

Um leitarstrengi, -orð og -aðferðir í ProQuest:

- Leitarstrengurinn atlantic ocean finnur allar greinar þar sem þessi orð standa saman þ.e. fyrir orðasambandið atlantic ocean. Leitarvélin gefur sér það, að sé leitað með tveimur orðum þar sem ekkert AND er á milli þá eigi þau orð að standa saman í texta

- Leitarstrengurinn "gulf stream current" finnur allar greinar þar sem þessi orð standa saman, en aðeins ef gæsalappir eru utan um leitarstrenginn

ATH alltaf þarf að setja gæsalappir utan um leitarstrengi þriggja eða fleiri orða sem standa eiga saman í texta

-Leitarstrengurinn weather AND atlantic ocean finnur allar greinar sem innihalda weather og orðasambandið atlantic ocean

- Leitarstrengurinn el nino AND tornadoes AND source(new york times) finnur allar greinar um el nino og fellibylji sem birst hafa í dagblaðinu New York Times

- Leitarstrengurinn sub(mars) AND water AND life finnur greinar um plánetuna Mars þar sem fjallað er um líf og vatn, þ.e. sub(…) merkir subject: eitthvað

- Leitarstregnurinn cap(siberian tiger) finnur greinar sem innihalda myndir af síberískum tígri, þ.e. cap er stytting á caption sem merkir myndatexti

-Spurningamerki ? er notað til að leita að öllum orðum sem hafa sama stofn s.s. biolog? sem skilar þá biology, biologist, biological….

- Stjarna / stjörnur * eru notaðar til að tilgreina ákveðinn fjölda bókstafa í mismunandi samsetningu, s.s. wom*n skilar woman, women, womyn … og educat** skilar educated, educator …

Einnig er hægt að leita að greinum í einu ákveðnu tímariti eða dagblaði með því að velja "Publication search" flipann og velja þar úr lista það rit sem leita á í.

 


síðast uppfært 26. ágúst 2011