| 10. mars: Stærðfræðikeppni
fyrir grunnskólanema
Árleg stærðfræðikeppni fyrir nemendur áttundu,
níundu og tíundu bekkja grunnskóla á Vesturlandi
var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands miðvikudaginn
10. mars, klukkan 15. Keppendur voru 144 nemendur frá 9 grunnskólum:
Auðarskóla, Brekkubæjarskóla, Grundaskóla,
Grunnskólanum í Borgarnesi, Grunnskólanum á
Hólmavík, Grunnskóla Borgarfjarðar, Heiðarskóla,
Laugargerðisskóla og Reykhólaskóla. Að lokinni
keppni nutu þátttakendur veitinga í mötuneyti
skólans.Styrktaraðili keppninnar er Norðurál á
Grundatanga. Viðurkenningar verða veittar laugardaginn 10. apríl
kl 13:00.
10. mars: Kynningarmyndband frá gamanleiknum Karokí
Hér má
nálgast kynningarmynband frá gamanleiknum Karokí
sem leiklistarklúbbur NFFA hefur til sýningar um þessar
mundir í Bíóhöllinni. Kynningarmyndbandið
var útbúið af kvikmyndaklúbbi NFFA undir stjórn
Sölku Margrétar Sigurðardóttur. Í Skessuhorni
má lesa umfjöllun um sýninguna. Sjá
umfjöllun hér.
8. mars: Frumsýning á gamanleiknum Karokí
Laugardagskvöldið 6. mars frumsýndi leiklistarklúbbur
nemendafélagsins gamanleikinn Karokí í Bíóhöllinni
á Akranesi. Höfundar og leikstjórar verksins eru Einar
Viðarsson og Gunnar Sturla Hervarsson. Húsfyllir var á
sýningunni og skemmtu áhorfendur sér hið besta.
Leikstjórar, leikarar og aðrið sem að verkinu komu
eiga lof skilið fyrir frábæra sýningu.

Ljósmynd: Inga Sigurðardóttir
Skólavefurinn hvetur alla til að mæta í Bíóhöllina
og sjá þennan skemmtilega gamanleik. Verkið verður
sýnt í kvöld, mánudaginn 8. mars klukkan 20.
Næstu sýningar verða síðan á þriðjudag,
fimmtudag og föstudag klukkan 20. Miðapantanir eru í síma
857-5994 eftir klukkan 16 og miðasala hefst í Bíóhöllinni
tveimur tímum fyrir hverja sýningu. Góða skemmtun.
8. mars: Kvikmynd af opnum dögum
Kvikmynd
sem tekin var á opnum dögum í síðustu viku
liggur hér frammi. Myndin er tæplega 5 mínútur
að lengd og skráin er 36 megabæti að stærð.
4. mars: Opnum dögum lokið - frí á morgun
Um hádegisbil í dag lauk opnum dögum og í kvöld
verður árshátíð nemendafélagsins.
Á morgun föstudaginn 5. mars verður frí í
skólanum og skrifstofa hans lokuð.
4. mars: Myndir frá opnum dögum
Opnir dagar í Fjölbrautaskóla Vesturlands
voru frá þriðjudegi 2. mars til fimmtudags 4.mars. Boðið
var upp á mikinn fjölda fyrirlestra, námskeiða
og ferða. Myndir frá nokkrum viðburðanna eru hér.
1. mars: Skólabíll á opnum dögum
Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag í þessari
viku eru opnir dagar. Þá daga leggur skólabíllinn
af stað klukkan 8:10 frá Borgarnesi en ekki klukkan 7:40. Brottför
frá Akranesi er klukkan 15:45 á þriðjudag og miðvikudag
og klukkan 13:00 á fimmtudag.
24. febrúar: Val fyrir opna daga
Opnir dagar verða á þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag í næstu viku. Nemendur velja dagskrárliði
í þessari viku. Opnað verður fyrir val í Plútó
klukkan 18 í dag, miðvikudag. Ætlast er til að allir
nemendur í reglulegu námi sem fæddir eru 1989 eða
síðar hafi valið fyrir klukkan 12 á föstudag.
Þess er ekki krafist að eldri nemendur (þeir sem eru fæddir
1988 eða fyrr), nemendur með frávik frá skólasóknarreglur
eða í óreglulegu námi (minna en 24 kennsklustundum
í viku) taki þátt í dagskrá opinna daga
en þeim er það að sjálfsögðu heimilt.
Minnt er á að vinsælustu viðburðirnir fyllast
fljótt og því borgar sig fyrir nemendur að velja
strax þegar opnað verður fyrir skráningu klukkan
18 í dag.
18. febrúar: Íþróttavakning í
framhaldsskólum
Í öllum framhaldsskólum landsins stendur yfir verkefnið
"Íþróttavakning". Verkefnið er samstarfsverkefni
Mennta- og menningarmálaráðuneytisins og nemendafélaga
í framhaldsskólum með stuðningi skólanna.
Verkefnið gengur út á að fá sem flesta nemendur
til að taka þátt og eru skólum gefin stig fyrir
þátttöku. Í gær tóku nemendur FVA
þátt í Íþróttavakningunni og gengu
í skrúðgöngu frá skólanum niður
í íþróttahúsið við Vesturgötu
og tóku þátt í Tarzanleik. Íþróttanefnd
NFFA hafði skipulagt þennan viðburð undir dyggri stjórn
Lóu Gísladóttur ásamt Jónínu
Víglundsdóttur félagsmálfafulltrúa,
Önnu Bjarnadóttur og Helga Magnússonar íþróttakennara
skólans. Íþróttavakningin tókst í
alla staði mjög vel og voru 330 nemendur sem tóku þátt
í leiknum.

8. febrúar: Námskrárvinna ásamt FSU og FS
Undanfarið hefur Fjölbrautaskóli Vesturlands verið
í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suðurlands og
Fjölbrautaskóla Suðurnesja um vinnu að nýrri
námskrá sem áætlað er að taki gildi
í ágúst 2011. Í dag og á morgun (kl:
13:00 - 15:00) munu kennarar frá þessum þremur skólum
funda. Í dag hittast hér í FVA fulltrúar kennara
í samfélagsgreinum, á Selfossi fulltrúar tungumálakennara
og í Keflavík fulltrúar kennara í íslensku
og íþróttum. Á morgun koma hingað fulltrúar
kennara í rafiðngreinum, tölvugreinum og stærðfræði.
Til Selfoss fara fulltrúar í viðskiptagreinum og málmiðngreinum
og til Keflavíkur kennarar í náttúruvísindum
og sjúkraliðanámi. Vegna þessara funda verður
rask á kennslu og munu nemendur geta fylgst með því
inni á PLUTO og á tilkynningaskjá í anddyri
skólans.
8. febrúar: Viðurkenning fyrir góðan árangur
á sveinsprófi
 |
|
Laugardaginn 5. febrúar bauð Iðnaðarmannafélagið
í Reykjavík til hátíðlegrar athafnar
í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar voru
afhentar viðurkenningar til þeirra nýsveina sem náðu
afbrags árangri á sveinsprófi árið
2009. Alls fengu 18 nemendur viðurkenningu frá félaginu.
Meðal þeirra var Gísli Líndal Karvelsson vélvirki.
Gísli Líndal lauk hér námi í vélvirkjun
á vorönn 2007 og lauk sveinsprófi á síðasta
ári með afbrags árangri. Á myndinni hér
til hliðar er Gísli Líndal ásamt Þjóðbirni
Hannessyni kennara í málmiðngreinum.
Við óskum Gísla til hamingju með viðurkenninguna. |
20. janúar: Breyting á tímaáætlun
skólabíls
Frá og með mánudeginum 25. janúar verður
brottför frá Borgarnesi klukkan 7:40 alla daga.
18. janúar: Tímasetning helgarnáms
í húsasmíði
Fyrsta kennsluhelgin verður 23. og 24. janúar og þá
mæta nemendur sem eru skráðir í TEH2036 og TEH3036.
Kennsla byrjar alltaf klukkan 8:30 og stendur til klukkan 18:00. Nánari
upplýsingar um helgarnámið finnið þið
undir krækjunni "helgarnám
í húsasmíði" hér til hægri
á síðunni. Nemendur í helgarnáminu,
athugið að gömlu aðgangsorðin að Pluto og Innu
gilda enn hjá ykkur.
14. janúar: Áætlun skólabílsins
Áætlun Borgarnesrútunnar fyrir vorönn 2010 er
komin á vefinn. Þið farið í krækjuna
"þjónusta" hér til vinstri og veljið
"Skólabíll", þá birtist áætlunin.
Áætlunin tekur gildi á morgun, föstudaginn 15.
janúar.
14. janúar: Fundur í bæjarstjórn unga
fólksins
Fundur í bæjarstjórn unga fólksins var haldinn
þriðjudaginn 12. janúar í Stjórnsýsluhúsinu
á Akranesi. Árný Lára Sigurðardóttur
og Guðmundur Böðvar Guðjónsson voru fulltrúar
nemenda í FVA á fundinum. Þau höfðu þar
framsögu og tóku þátt í umræðum
og stóðu sig með miklum ágætum.

5. janúar: Ferðir skólabílsins á
morgun og fyrstu daga annarinnar
Á morgun 6. janúar fer skólabíllinn frá
Hyrnunni í Borgarnesi kl. 12:15 og til baka frá Akranesi
kl. 15:30. Frekari upplýsingar um ferðir
skólabílsins næstu daga má nálgast
hér.
30. desember: Upphaf vorannar 2010
Mánudaginn 4. janúar klukkan 10 er fundur með öllu
starfsfólki skólans og fulltrúum nemenda og strax
þar á eftir er kennarafundur.
Nýnemar (sem ekki hafa verið nemendur áður í
skólanum) mæta á kynningarfund klukkan 10 miðvikudaginn
6. janúar og fá afhentar stundatöflur. Aðrir nemendur
geta sótt stundatöflur milli klukkan 13 og 16 sama dag. Kennsla
samkvæmt stundatöflu hefst klukkan 8:30 fimmtudaginn 7. janúar.
Óskir um breytingar á stundatöflum verða afgreiddar
frá klukkan 13 - 18 þann 6. janúar og klukkan 8 -
12 og 13 - 17 fimmtudaginn 7. janúar og klukkan 8 - 12 og 13 -
15 föstudaginn 8. janúar. Töflubreytingum lýkur
föstudaginn 8. janúar.
Heimavistin opnar þriðjudaginn 5. janúar klukkan 16.
Reglulegur skólaakstur hefst fimmtudaginn 7. janúar kl.
7:45.
21. desember: Brautskráning og skólaslit
(listi
yfir nemendur)
Laugardaginn 19. desember, var Fjölbrautaskóla Vesturlands
slitið og 57 nemendur brautskráðir við hátíðlega
athöfn á sal skólans. Hörður Ó. Helgason
skólameistari ávarpaði samkomugesti og afhenti útskriftarnemum
skírteini sín. Hafdís Ásgeirsdóttir
aðstoðarskólameistari flutti annál
vorannar 2009. Kristján Gauti Karlsson nýstúdent
flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
Ásbjörn Egilsson fékk viðurkenningu skólans
fyrir bestan námsárangur nýstúdenta á
haustönn 2009. Oddur Björn Jóhannsson fékk Kötluverðlaun
fyrir bestan námsárangur iðnnema sem luku námi
á haustönn 2009. Aðrir útskriftarnemar sem fengu
verðlaun og viðurkenningar eru Birkir Guðmundarson, Davíð
Magnússon, Elsa Þorbjarnardóttir, Eva Laufey Kjaran
Hermannsdóttir, Eyrún Jónsdóttir, Guðrún
S. Sveinbjörnsdóttir, Harpa Jónsdóttir, Ívar
H. Sævarsson, Kristín Sandra Karlsdóttir, Kristján
Gauti Karlsson, Ragnar Harðarson, Skarphéðinn Magnússon
og Þórarinn Halldórsson.

Í lokin ávarpaði Hörður Ó. Helgason
skólameistari útskriftarnemendur, árnaði þeim
heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Samkomunni lauk
með því að gestir risu úr sætum og sungu
Bráðum koma blessuð jólin eftir Jóhannes
úr Kötlum við lag W. B. Bradbury. Gyða Bentsdóttir
var forsöngvari. Tómas Ævar Ólafsson lék
undir á gítar.
Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í
boði skólans. Meira...
15. desember: Sýning á verkefnum og afhending einkunna
fyrir sveinspróf
Í gær fengu nemendur sem þreyttu sveinspróf
á trésmíðaverkstæði skólans
um helgina afhentar einkunnir og jafnframt voru verkefni þeirra
til sýnis. Við það tækifæri var myndin
hér að neðan tekin. Á henni eru nemendur sem stóðust
prófið ásamt þrem kennurum við deildina, skólameistara
og Kristjáni Bjartmars prófdómara sem er lengst til
vinstri. Verkefnið sem nemendur fengu var að smíða
turnþak og leystu þeir það allir með miklum
sóma.

14. desember: Einkunnarafhending
Aðgangur nemenda að einkunnum í INNU hefur verið opnaður
og geta nemendur séđ einkunnir sem búiđ er ađ skrá. Formleg einkunnaafhending
er ţó ekki fyrr en á miðvikudaginn kl. 10:30 og prófsýning
verður þann sama dag klukka 11 - 12. Ekki er viđ ţví ađ búast
ađ allar einkunnir verđi komnar inn fyrr en á miðvikudaginn.
Ţótt einkunn hafi veriđ skráđ í Innu og birt nemendum áskilur skólinn
sér rétt til ađ leiđrétta mistök viđ útreikning eđa skráningu einkunna.
14. desember: Inga Elín með Íslandsmet á
EM
Inga Elín Cryer nemandi FVA setti Íslandsmet kvenna í
400 metra fjórsundi á lokadegi EM í 25 metra laug
í Istanbúl. Skólavefurinn óskar henni til
hamingju með árangurinn.
14. desember: Laus pláss á heimavist eftir áramót
Nokkur pláss á heimavist eru laus til umsóknar á
vorönn 2010. Áhugasamir sæki um á skrifstofu
skólans.
14. desember: Skólabíllinn á prófsýningardag
Skólabíllinn fer frá Borgarnesi kl. 9:45 og til baka
frá Akranesi kl. 12:05, miðvikudaginn 16. desember.
8. desember: Inga Elín á EM
í sundi
Inga Elín Cryer nemandi FVA á fyrsta ári mun keppa
sem fulltrúi Íslands í 400 og 800 metra skriðsundi
og 400 metra fjórsundi á EM í Instanbúl í
Tyrklandi 10. - 13. desember næstkomandi. Skólavefurinn óskar
Ingu Elínu alls hins besta.
2. desember: Mikilvægar dagsetningar á vorönn
2010
6. janúar Afhending stundatöflu og töflubreytingar.
7. janúar Kennsla hefst skv. stundatöflu.
29. mars Páskafrí hefst.
6. apríl Síðasti dagur í páskafríi.
22. apríl Sumardagurinn fyrsti.
30. apríl Síðasti kennsludagur.
3. maí Próf hefjast.
13. maí Uppstigningadagur
21. maí Brautskráning og skólaslit.
26. nóvember: Lea Hrund í landsliðshóp
Lea Hrund Guðjónsdóttir, nemandi FVA var valin í
landsliðshópinn í sundi sem heldur utan í dag
og mun keppa í Færeyjum helgina 27.- 29. nóvember.
Skólavefurinn óskar henni alls hins besta.
23. nóvember: Inga Elín Cryer tvöfaldur Íslandsmeistari
Íslandsmeistaramót í sundi í 25 m
laug fór fram um helgina. Sundfélag Akraness átti
þar marga þátttakendur m.a. nokkra sem eru nemendur
í FVA. Öll stóðu þau sig mjög vel. Hæst
ber þó árangur Ingu Elínar Cryer sem varð
Íslandsmeistari í 200 m. flugsundi og í 400 m fjórsundi
þar sem hún setti einnig Íslandsmet. Inga Elín
náði einnnig frábærum árangri í
400 m skriðsundi þar sem hún setti stúlknamet
og varð í 2. sæti, hún varð einnig í
2. sæti í 800 m skriðsundi. Jón Þór
Hallgrímson var einnig meðal verðlaunahafa, en hann varð
í 2. sæti í 200 m flugsundi. Við óskum
þeim Ingu Elínu og Jóni Þór til hamingju
með glæsilegan árangur.
16. nóvember: Innritun fyrir vorönn 2010 stendur
yfir
Umsóknarfrestur um nám á vorönn er til 25. nóvember.
Rafrænni innritun í lýkur föstudaginn 20. nóvember
en tekið verður við skriflegum umsóknum á afgreiðslu
skólans til 25. nóvember. Hægt er að hefja nám
á öllum stúdentsbrautum auk þess er hægt
að hefja nám á almennri námsbraut, viðskiptabraut
til verslunarprófs og húsasmíði (einstaklingar
20 ára og eldri eru velkomnir). Nokkur pláss eru laus í
áfanganum CNC103 (CNC-stýringar) sem verður kenndur
síðla dags á virkum dögum.Allar upplýsingar
liggja frammi á vefnum
menntagatt.is
Heimavist: Nokkur pláss á heimavist eru
laus til umsóknar.
9. nóvember: Upptökur frá
Skammhlaupi
Búið er að klippa saman og útbúa stutta vídeó-samantekt
frá Skammhlaupinu sem haldið var föstudaginn 30. október.
Hér
má nálgast vídeó-samantektina.
5. nóvember: Skrefað og skrifað um Vesturflös
Á myndinni má sjá nokkra valinkunna þátttakendur
í ÍSL2836 sem ber vinnuheitið Skrefað og skrifað.
Hún er tekin við allra ystu mörk Skagans til suð-vesturs
þar sem heitir Vesturflös. Flösin þessi skagar um
2-300 skref fram úr svokölluðum Grenjum þar sem
er Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts. Leiða
má líkum að því að þar sem nú
sér aðeins í berar ísaldarklappirnar hafi áður
verið grösugur tangi. En jafnvel þó að staðurinn
megi e.t.v. muna fífil sinn fegri þá vita samt margir,
og kannski engir betur en nemendurnir á myndinni, að þessar
klappir hafa svo sannarlega hlutverki að gegna. Í vari við
þær að sunnanverðu er Lambhúsasund.
4. nóvember: Tónlistarkeppni NFFA
Tónlistarkeppni NFFA var haldin síðastliðinn föstudag.
Bergur Líndal Guðnason var kosinn besti bassaleikari,Halldór
Símon Þórólfsson besti gítarleikari,
Guðjón Jósef Baldursson besti trommari og Marinó
Rafn Guðmundsson besti söngvari. Hljómsveitin "Stengah"hreppti
fyrsta sætið, í öðru sæti var hljómsveitin
"Cradlestone" og í því þriðja
var hljómsveitin "Seagles of black metall". Hér
má nálgast upptöku frá keppninni.
3. nóvember: Fræðslufundur Foreldraráðs
Fræðslufundur á vegum Foreldraráðs FVA verður
mánudaginn 9. nóvember, klukkan 20:00 á sal skólans.
Fulltrúar Rannsókna og greiningar við Háskólann
í Reykjavík munu ræða um forvarnir með hliðsjón
og aðkomu foreldra og skóla. Þá munu þeir
sýna tölulegar niðurstöður um áfengis-
og vímuefnanotkun meðal framhaldsskólanema og þá
sérstaklega nemenda við FVA. Allir eru velkomnir, forráðamenn
nemenda eru sérstaklega hvattir til að mæta.
2. nóvember: Innritun fyrir vorönn 2010
Rafræn innritun í framhaldsskóla fyrir vorönn
2010 er hafin og stendur til 20. nóvember. Allar upplýsingar
liggja frammi á vefnum
menntagatt.is
30. október: Skammhlaup, tónlistarkeppni og ball
Hið árlega skammhlaup, þar sem nemendur skiptastí
8 lið sem keppa í mörgum tugum greina, hófst klukkan
8:30 í morgun og stóð fram yfir hádegi. Lið
þeirra hvítu sigraði. Klukkan 17 hefst tónlistarkeppni
nemendafélags FVA sem fer fram í Bíóhöllinni.
Hátíðahöldum dagsins lýkur með dansleik
á vegum nemendafélagsins.

27. október: Gestir frá sex löndum
Fjölbrautaskólinn er aðili að evrópsku Comeniusarverkefni
sem nefnist "Europe in a Salad bowl" ásamt sex öðrum
skólum í jafnmörgum Evrópulöndum. Auk Íslands
eru það Austurríki, Eistland, Spánn, Svíþjóð,
Tékkland og Ungverjaland. Þessa dagana eru í heimsókn
hjá okkur 18 nemendur og 7 kennarar frá þessum sex
löndum. Í morgun voru þátttakendur frá
öllum löndunum með skemmtidagskrá á sal skólans.
Í tengslum við sama verkefni fór Kristján E.
Guðmundsson ásamt nemendunum Ásbirni Egilssyni, Evu
Laufey Hermannsdóttur og Guðmundi B. Guðjónssyni
í heimsókn til Eistlands og Svíþjóðar
í síðustu viku. Á sama tíma fór
Jón Árni fór ásamt nemendunum, Kristjáni
Gauta Karlssyni, Gyðu B. Bergþórsdóttur og Bergþóru
Friðriksdóttur til Spánar og Austurríkis. Umsjón
með þessari heimsókn hefur Kristján E. Guðmundsson.

26. október: Inga Elín náði A-lágmarki
á EM
Inga Elín Cryer nemandi FVA á fyrsta ári náði
A-lágmarki á Evrópumeistaramótið í
25 metra laug í 400 metra fjórsund ií Hafnarfirði
um helgina. Hún náði einnig B-lágmarki í
400 og 800 metra skriðsundi. Inga Elín mun keppa sem fulltrúi
Íslands í þessum greinum á EM í Instanbúl
í Tyrklandi 10. - 13. desember næstkomandi. Skólavefurinn
óskar Ingu Elínu til hamingju með árangurinn.
26. október: Einar Örn með brons
Á bikarmóti IKF-Metal sem haldið var laugardaginn 24.
október hreppti Einar Örn Guðnason nemandi við málmiðnadeild
skólans bronsverðlaun í 90 kg flokki fyrir samanlagðan
árangur í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu.
Að auki setti hann þrjú drengjamet. Skólavefurinn
óskar Einari Erni til hamingju með árangurinn.
20. október: Góður árangur
Arons Öfjörð í stærðfræðikeppni
Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema var haldin
við framhaldsskóla um land allt þann 6. október.
Aron Öfjörð Jóhannesson, nemandi á þriðja
ári á náttúrufræðibraut, varð
í ellefta sæti í eldri flokki og ávann sér
þar með rétt til þátttöku í
úrslitakeppninni sem haldin verður síðar í
vetur. Skólavefurinn óskar Aroni Öfjörð til
hamingju með þennan góða árangur.
20. október: Skammhlaup
Hið árlega skammhlaup, þar sem nemendur skiptast í
lið sem keppa í mörgum greinum verður föstudaginn
30. október. Hér má nálgast "videoklippu"
af skammhlaupi frá því fyrir ári síðan.
14. október: Miðannarfrí
Fimmtudag 15. október og föstudag 16. október er miðannarfrí.
Engin kennsla verður þessa daga og skrifstofa skólans
verður lokuð. Heimavistin verður lokuð frá klukkan
18 í dag 14. október til klukkan 18 sunnudag 18. október.
14. október: Val á áföngum fyrir vorönn
2010
Frestur til að skrá val á áföngum fyrir
vorönn 2010 er framlengdur til miðvikudagsins 21. október.
Allar
upplýsingar sem nota þarf til að velja áfanga
eru hér á vefnum. Þeim sem þurfa aðstoð
eða ráðgjöf er bent á að hafa samband við
aðstoðarskólameistara, áfangastjóra eða
námsráðgjafa hið fyrsta.
14. október: Jöfnunarstyrkur
Minnt er á að frestur til að sækja um um jöfnunarstyrk
rennur út í dag 15. október. Upplýsingar eru
á vef LÍN (www.lin.is). Nemendur sem verða að dvelja
fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu vegna náms
geta fengið dvalarstyrk og þeir sem sækja nám frá
lögheimili og fjölskyldu fjarri skóla geta fengið
akstursstyrk.
12. október: Útivistarhópur á Hafnarfjalli
Frískur hópur nemenda í áfanganum ÍÞR3U13
gekk á Hafnarfjall á laugardaginn 3. október síðastliðinn.
Veður var fallegt en kalt, logn var á toppnum og skrifuðu
allir ferskir og kátir í gestabókina.
30. september: Námsáætlanagerð og val
fyrir vorönn 2010
Upplýsingar um námsáætlanagerð og val fyrir
vorönn 2010 eru komnar á vefinn og búið að
opna fyrir skráningu á vali í Innu. Nemendur sem
ætla að vera í skólanum á vorönn 2010
þurfa að skrá val í Innu fyrir 14. október.
Nemendur geta fengið aðstoð við valið hjá námsráðgjöfum,
áfangastjóra, aðstoðarskólameistra og deildarstjórum.
30. september: Fundargerð skólanefndarfundar
Skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands kom saman
þann 23. september síðastliðinn.. Fundargerð
liggur hér frammi.
28. september: Sjö nemendur FVA fá Forsetamerki skátahreyfingarinnar
Laugardaginn 26. september afhenti forseti Íslands 22
skátum Forsetamerkið. Forsetamerkið hefur verið afhent
árlega síðan 1965 og er staðfesting á að
skátinn hafi stundað þróttmikið skátastarf
í a.m.k tvö ár og lokið tilskyldum námskeiðum
og verkefnum. Í hópi þeirra sem fengu Forsetamerkið
afhent þetta árið eru sjö nemendur Fjölbrautaskóla
Vesturlands. Þær Bergþóra Sveinsdóttir,
Klara Árný Harðardóttir, Kristjana Kristjánsdóttir,
Margrét Helga Guðmundsdóttir, Sædís Eir
Benteinsdóttir, Valgerður Stefánsdóttir og Unnur
Rebekka Þráinsdóttir. Við óskum þeim
til hamingju með þessa viðurkenningu.
24. september: Ný stjórn Foreldraráðs
Fjölbrautaskóla Vesturlands
Lög Foreldrafélgs FVA voru endurskoðuð á
aðalfundi félagsins þriðjudaginn 22. september síðastliðinn
og var nafni félagsins breytt í Foreldraráð Fjölbrautaskóla
Vesturlands. Á fundinum var kosin ný stjórn og í
henni eiga sæti: Borghildur Jósúadóttir, Erla
Olgeirsdóttir, Eyrún Kristínardóttir, Hrefna
Ingólfsdóttir, Margrét Þóra Jónsdóttir,
Ósk Jónsdóttir og Theódóra Jóhannsdóttir.
Birna Þorbergsdóttir og Linda Björk Pálsdóttir
voru kjörnar skoðunarmenn reikninga.
18. september: Foreldrafundur
Þriðjudaginn 22. september klukkan 19:30 verður almennur
foreldrafundur í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Fundurinn
byrjar á aðalfundi Foreldrafélags Fjölbrautaskóla
Vesturlands. Að þeim fundi loknum verður farið yfir
nokkur atriði í starfi skólans og síðan gefst
forráðamönnum nýnema tækifæri til að
hitta umsjónarkennara barna sinna. Skólastjórnendur
og námsráðgjafar verða til viðtals.
8. september: Jöfnunarstyrkur
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk
vegna skólaársins 2009-2010. Umsóknarfrestur er til
15. október næstkomandi. Hægt er að sækja
um styrkinn í gegnum netbanka eða Innu, vefkerfi framhaldsskólanna.
Nemendur sem verða að dvelja fjarri lögheimili sínu
og fjölskyldu vegna náms geta fengið dvalarstyrk og þeir
sem sækja nám frá lögheimili og fjölskyldu
fjarri skóla geta fengið akstursstyrk. Allir sem ferðast
með skólabílnum í Borgarnesi verða að
sækja um.
Nánari upplýsingar eru á vef LÍN (www.lin.is).
7. september: Nýnemasprell á Langasandi
Síðastliðinn föstudag stóð nemendafélag
skólans fyrir "Nýnemasprelli". Nýnemar
gengu fylktu liði undir dyggri stjórn eldri nemenda upp á
Langasand þar sem þeir leystu ýmsar skemmtilegar þrautir
á sandinum og í sjónum. Allir virtust skemmta sér
hið besta og enginn er verri þótt hann vökni.
Fleiri myndir
3. september: Tímasetning helgarnáms í húsasmíði
Fyrsta kennsluhelgin verður 12. og 13. september og mæting er
klukkan 8:30. Upplýsingar um aðrar kennsluhelgar finnið
þið undir krækjunni "helgarnám í húsasmíði"
hér til hægri á síðunni.
25. ágúst: Áætlun skólabílsins
Áætlun Borgarnesrútunnar fyrir haustönn 2009
er komin á vefinn. Þið farið í krækjuna
"þjónusta" hér til vinstri og veljið
"Skólabíll", þá birtist áætlunin.
25. ágúst: Skólaheimsókn frá
Austurríki
Fjölbrautaskólinn er aðili að Evrópsku
Comeniusarverkefni sem nefnist "Europe in a Salad bowl" og standa
að því 6 skólar auk FVA. Þessa dagana eru
í heimsókn hjá okkur 9 nemendur og 2 kennarar, ásamt
skólastjóra frá einum þessara skóla,
BHAK Bregenz (Bundeshandelsakademie Bregenz) í Austurríki.
Eru þau að kynna sér íslenska skólakerfið
og líf og starf í íslenskum framhaldsskóla.
Umsjón með þessari heimsókn hefur Kristján
E. Guðmundsson.

25. ágúst: Áætlun Borgarnesrútu
25.08 - 28.08
Brottför frá Borgarnesi verður klukkan 7:45 alla daga
vikunnar.
Brottför frá skólanum verður klukkan 15:45 á
þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag.
Á föstudag verður brottför frá skólanum
klukkan 14:40.
Endanleg áætlun haustannar verður auglýst föstudaginn
28.08.
18. ágúst: Upphaf haustannar 2009
Fjölbrautaskóli Vesturlands verður settur mánudaginn
24. ágúst kl. 10.
Nýnemar eiga að koma á skólasetninguna. Foreldrar
og forráðamenn þeirra og eldri nemendur eru einnig velkomnir.
Að skólasetningu lokinni munu nýnemar hitta umsjónarkennara
sína, fá stundatöflur afhentar og önnur gögn
um skólann. Sérstök dagskrá verður fyrir
nýnema þennan dag til kl. 15:30.
Eldri nemendur geta sótt stundatöflur sínar mánudaginn
24. ágúst kl. 13 - 17.
Heimavistin opnar sunnudaginn 23. ágúst kl. 16.
Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 25.
ágúst kl. 8:30.
Skólabíll fer frá Borgarnesi mánudaginn 24.
ágúst kl: 9:15 og til baka
kl. 16:30. Reglulegur skólaakstur frá Borgarnesi hefst þriðjudaginn
25. ágúst kl. 7:45.
Verslunin Eymundsson, Akranesi, verður með þær bækur
til sölu sem notaðar eru í kennslu í FVA. Skiptibókamarkaður
er hafinn. Verslunin verður opin til kl. 21, mánudaginn 24.
ágúst.
Bókalista fyrir haustönn 2009 má nálgast hér
til hægri á heimasíðunni.
18. ágúst: Foreldrafélag Fjölbrautaskóla
Vesturlands boðar til fundar
Foreldrafélag FVA boðar til fundar fimmtudaginn 20.
ágúst kl. 20 á sal Fjölbrautaskólans.
Allir aðstandendur nemenda FVA eru hvattir til að mæta,
sérstaklega er mikilvægt að forráðamenn nemenda
undir 18 ára aldri mæti. Stjórnendur FVA koma á
fundinn.
11. ágúst: Aðstoðarskólameistari
Atli Harðarson, aðstoðarskólameistari verður
í námsorlofi skólaárið 2009-2010. Hafdís
Fjóla Ásgeirsdóttir mun gegna stöðu aðstoðarskólameistara
í fjarveru hans.
11. ágúst: Fundargerð fulltrúaráðsfundar
Fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands
kom saman þann 24. júní.
Fundargerð liggur hér frammi.
11. ágúst: Fundargerð skólanefndarfundar
Skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands kom saman
þann 18. júní. Fundargerð
liggur hér frammi.
10. ágúst: Fjarnám og dreifnám
Menntamálaráðuneytið hefur boðað samdrátt
í fjárveitingum til framhaldsskóla. Sá samdráttur
hefur m.a. í för með sér að fjárveiting
til fjarkennslu og dreifnáms verður skert um 50%.
Þetta hefur þau áhrif að Fjölbrautaskóli
Vesturlands getur hvorki boðið upp á fjarnám né
dreifnám á komandi haustönn. Þó verður
reynt að koma til móts við nemendur sem eiga lítið
eftir til að ljúka þeirri námsbraut sem þeir
eru skráðir á og hafa ekki möguleika á að
ljúka námi á annan hátt. Nemendur sem þannig
eru staddir þurfa að hafa samband við stjórnendur
skólans.
4. ágúst: Opnunartími
skrifstofu skólans
Skrifstofa skólans er opin alla virka daga frá klukkan
7:50 til klukkan 15:00. Svarað er í síma 433-2500 mánudaga-fimmtudaga
frá kl. 8:00-16:00 og föstudögum frá kl. 8:00-14:45.
19. júní: Lokun
vegna sumarleyfa starfsfólks
Skrifstofa skólans er lokuđ vegna sumarleyfa starfsfólks frá klukkan
15 í dag föstudag 19. júní. Hún opnar aftur klukkan 13 ţriđjudaginn 4.
ágúst. Ţeir sem eiga brýn erindi
viđ skólann geta náđ í skólameistara í síma 864 1711, ađstođarskólameistara
í síma 897 4190 og áfangastjóra í síma 897 5148.

19. júní: Fundur
í skólanefnd
Í gćr, 18. júní var fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Fundarefni voru: Innritun fyrir haustönn, rekstrarstađa skólans, ný útgáfa
skólanámskrár, breytingar á starfsliđi, hćkkun á gjaldskrá mötuneytis
og heimavistar.
16. júní: Svör
viđ umsóknum um skólavist
Svör viđ umsóknum um skólavist á haustönn 2009 verđa póstlögđ fyrir
vikulok. Ţetta á viđ um umsóknir um reglulegt nám í dagskóla sem bárust
áđur en umsóknarfrestur rann út ţann 11. júní. Hvorki er unnt ađ svara
umsóknum um nám á sjúkraliđabraut né umsóknum um fjarnám og dreifnám fyrr
en eftir verslunarmannahelgi.
16. júní: Svör
viđ umsóknum um pláss á heimavist
Svör viđ umsóknum um pláss á heimavist verđa póstlögđ föstudaginn 19.
júní.
15. júní: Nemendafjöldi
eftir ađ innritun er lokiđ
Nú ţegar innritun fyrir haustönn 2009 er lokiđ er fjöldi ţeirra sem
óskar eftir skólavist alls 686. Ţar af eru 126 sem luku 10. bekk í vor
og 65 ađrir nemendur sem ekki voru í skólanum á vorönn 2009.
Af ţessum 686 nemendum eru 482 fćddir 1990 eđa seinna,
104 fćddir á árabilinu 1986 til 1989 og 100 fćddir 1985 eđa fyrr. Karlar
eđa piltar eru 376 og stúlkur eđa konur eru 310.

12. júní: Innritun
fyrir haustönn 2009 lauk í gćrkvöldi
Festur til ađ sćkja um skólavist á haustönn 2009 rann út í gćrkvöldi.
Alls 125 nemendur sem luku 10. bekk í vor sóttu um FVA sem ađalskóla og
44 sóttu um FVA sem fyrsta varaskóla. Samsvarandi tölur frá vorinu 2008
eru 135 og 39 og voriđ 2007 voru ţćr 133 og 35.
29. maí: Innheimta
innritunargjalda fyrir haustönn 2009
Sendir hafa veriđ út greiđsluseđlar vegna innritunargjalda fyrir haustönn
2009. Gjalddagi er 1. júní og eindagi 10. júní. Nemendur stađfesta ađ
ţeir ćtla ađ koma í skólann međ ţví ađ greiđa fyrir lok eindaga. Ţeir
sem ekki borga verđa teknir af skrá.
Ekki voru sendir greiđsluseđlar til allra sem völdu áfanga
á haustönn 2009 enda ekki hćgt ađ gefa öllum ákveđin svör um skólavist
fyrr en unniđ hefur veriđ úr umsóknum nýnema.
Eftirtaldir nemendahópar fá svör viđ umsóknum um skólavist
og greiđsluseđla fljótlega eftir miđjan júní:
• Nýnemar og endurinnritađir nemendur sem voru ekki í skólanum á
vorönn 2009;
• Ţeir sem sćkja um ađ byrja í iđnnámi eđa sjúkraliđanámi;
• Ţeir sem voru međ fall (undir 5) í skólasókn og verulegum hluta
áfanga á vorönn.
Umsóknir um dreifnám og fjarnám verđa afgreiddar í lok ágúst.

23. maí: Brautskráning og skólaslit (Listi yfir nemendur ... Myndir ...
Meira ...)
Í dag, laugardag 23. maí 2009, var Fjölbrautaskóla Vesturlands slitiđ
og 53 nemendur brautskráđir viđ hátíđlega athöfn á sal skólans. Hörđur
Ó. Helgason skólameistari ávarpađi samkomugesti og afhenti útskriftarnemum
skírteini sín. Atli Harđarson ađstođarskólameistari flutti annál vorannar 2009. Vilborg Lárusdóttir
nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
Hörđur Kári Harđarson fékk viđurkenningu skólans fyrir bestan
námsárangur nýstúdenta á vorönn 2009. Fannar Magnússon fékk Kötluverđlaun
fyrir bestan námsárangur iđnnema sem luku námi á vorönn 2009. Ađrir útskriftarnemar
sem fengu verđlaun og viđurkenningar eru Ásta Ţorsteinsdóttir, Gyđa Kristjánsdótti,
Halldór Ragnar Guđjónsson, Halldóra Guđjónsdóttir, Ragnar Ţór Gunnarsson,
Sturla Magnússon, Vilborg Lárusdóttir og Ţórey Hólm Heimisdótti.
Námsstyrkur Akraneskaupstađar og Borgarbyggđar skiptist jafnt
milli tveggja umsćkjenda sem báđir luku námi á vorönn 2009. Ţeir eru Hörđur
Kári Harđarson sem lauk stúdentsprófi af náttúrufrćđibraut međ lífvísindakjörsviđi
og Tómas Guđmundsson sem lauk burtfararprófi af námsbraut í rafvirkjun
og stúdentsprófi eftir nám í rafvirkjun.
Marianne Sigurđardóttir sem lauk stúdentsprófi af náttúrufrćđibraut
í desember 2008 fékk verđlaun fyrir framúrskarandi námsárangur úr sjóđi
Guđmundar P. Bjarnasonar á Sýruparti.

Hörđur Ó. Helgason skólameistari ávarpađi útskriftarnemendur í lokin,
árnađi ţeim heilla og ţakkađi ţeim fyrir samveruna. Ađ athöfn lokinni
ţáđu gestir veitingar í bođi skólans. (Meira ...)
22. maí: Brautskráning
og skólaslit á morgun
Á morgun, laugardag 23. maí, verđur skólanum slitiđ og 53 nemendur
brautaskráđir. Athöfnin, sem fram fer á sal skólans, hefst klukkan 14.
19. maí: Náttúrufrćđiháskóli
unga fólksins
Alla ţessa viku eru fjórir nemendur af náttúrufrćđibraut skólans á námskeiđi
hjá Landbúnađarháskóla Íslands
á Hvanneyri. Alls eru tíu nemendur á námskeiđinu, hinir sex eru úr
Fjölbrautaskóla Snćfellinga og Menntaskóla Borgarfjarđar. Námskeiđiđ,
sem kallast Náttúrufrćđiháskóli unga fólksins, er í bođi Landbúnađarháskólans
og á ţví kynnast nemendur rannsóknarađferđum og vinnubrögđum náttúruvísindamanna.
Ţegar ljósmyndari skólavefjarins hitti hópinn um hádegisbiliđ
í dag var veriđ ađ sćkja laxaseiđi í Andakílsá og skođa ţau í rannsóknarstofum
Landbúnađarháskólans.

Nemendurnir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands sem taka ţátt í námskeiđinu
eru Ásta Ţorsteinsdóttir, Elsa Ţorbjarnardóttir, Guđný Vilhjálmsdóttir
og Sara Lísa Ćvarsdóttir. Ţćr hafa allar náđ góđum árangri í náttúrufrćđinámi,
enda er námskeiđiđ einungis ćtlađ nemendum sem hafa sýnt dugnađ og áhuga
á ţví sviđi.
19. maí: Sýning
á verkefnum og afhending einkunna fyrir sveinspróf
Í gćr fengu nemendur sem ţreyttu sveinspróf á trésmíđaverkstćđi skólans
um helgina afhentar einkunnir og jafnframt voru verkefni ţeirra til sýnis
á trésmíđaverkstćđi skólans. Viđ ţađ tćkifćri ađ myndin hér ađ neđan tekin.
Á henni eru nemendur sem stóđust prófiđ ásamt ţrem kennurum viđ deildina
og Braga Finnbogasyni prófdómara sem er lengst til hćgri á myndinni. Verkefniđ
sem nemendur fengu var ađ smíđa snúinn tréstiga og sést í tvo slíka á
myndinni.

19. maí: Skráning
einkunna í Innu
Frá hádegi í gćr hafa nemendur getađ séđ einkunnir sem búiđ er ađ skrá
í Innu. Formleg einkunnaafhending er ţó ekki fyrr en morgun og ekki er
viđ ţví ađ búast ađ allar einkunnir verđi komnar inn fyrr en ţá. Ţótt
einkunn hafi veriđ skráđ í Innu og birt nemendum áskilur skólinn sér rétt
til ađ leiđrétta mistök viđ útreikning eđa skráningu einkunna.
18. maí: Brottfall
mun meira en undanfarnar annir
Frá ţví töflubreytingum lauk og ţar til próf byrjuđu hćttu 46 nemendur
í skólanum og til viđbótar voru 194 nemendur skráđir úr einstökum áföngum.
Úrsagnir nemenda úr skóla og úr einstökum áföngum urđu til ţess ađ námshópar
minnkuđu ađ međaltali um 11,2%. Til samanburđar má nefna ađ á vorönn 2008
var brottfalliđ 7,0% og á vorönn 2007 var ţađ 7,5%.
18. maí: Sveinspróf
í húsasmíđi
Um síđustu helgi ţreyttu átta nemendur sveinspróf í húsasmíđi á trésmíđaverkstćđi
skólans. Fimm af ţeim verđa brautskráđir af námsbraut í húsasmíđi laugardaginn
23. maí, tveir voru brautskráđir frá skólanum í fyrra og einn lýkur námi
nćsta vetur. Prófdómari var Bragi Finnbogason.
15. maí: Opnađ
hefur veriđ fyrir rafrćna innritun
Opnađ hefur veriđ fyrir rafrćna innritun í framhaldsskóla á haustönn
2009. Allar upplýsingar eru á vefnum http://www.menntagatt.is/. Innritun lýkur 11. júní.

13. maí: Atvinnu-
og búsetuhorfur nemenda
Ţann 22. apríl var lögđ könnun fyrir nemendur í umsjónartíma ţar sem međal
annars var spurt um atvinnu- og búsetuhorfur. Könnunin, sem unnin var
af Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, Símenntunarmiđstöđ Vesturlands
og Vinnumálastofnun á Vesturlandi, var einnig lögđ fyrir nemendur í framhaldsskólunum
í Borgarnesi og Grundarfirđi.
Viđ Fjölbrautaskóla Vesturlands töldu 66% svarenda sig hafa
trygga atvinnu nćsta sumar. Í hinum skólunum tveim var ţetta hlutfall
hćrra eđa 72% í Grundarfirđi og 76% í Borgarnesi.
Stúlkur voru talsvert bjartsýnni er piltar. Viđ Fjölbrautaskóla
Vesturlands sögđust 79% stúlkna en ađeins 59% drengja hafa trygga sumarvinnu.
Atvinnuhorfur eldri nemenda virđast talsvert bjartari en hjá ţeim yngri.
Af Akurnesingum sem fćddir eru 1992 töldu ađeins 49% sig hafa trygga sumarvinnu
en hjá nćstu ţrem árgöngum, sem fćddir eru 1991, 1990 og 1989, er ţetta
hlutfall 58%, 74% og 90%.
Ţegar spurt var hvar nemendur teldu líklegast ađ ţeir mundu
búa ađ námi loknu kom Akranes áberandi betur út en ađrir stađir á Vesturlandi.
Af ţeim sem nú búa á Akranesi taldi 51% sig líklega mundu búa ţar áfram.
Samsvarandi tala fyrir Borgarbyggđ var 36% og fyrir ţéttbýlisstađi á Snćfellsnesi
á bilinu 25% til 31%.
12. maí: Afreks-
og hvatningarsjóđur stúdenta HÍ - umsóknarfrestur til 5. júní
Ellefu styrkir verđa veittir úr Afreks- og hvatningarsjóđi stúdenta
Háskóla Íslands 16. júní nćstkomandi. Um er ađ rćđa styrki til nemenda
sem náđ hafa afburđaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands.
Hver styrkur nemur 300.000 krónum auk niđurfellingar skráningargjalds
í Háskólann, sem er 45.000 krónur.
Umsóknarfrestur um styrki úr sjóđnum fyrir ţetta ár rennur
út 5. júní.
Stjórn sjóđsins velur styrkhafana en viđ valiđ er einkum
tekiđ miđ af framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi. Einnig er horft
til virkni í félagsstörfum og árangurs stúdenta á öđrum sviđum svo sem
í listum og íţróttum. (Nánari upplýsingar ...)
7. maí 2009: Um
tveir ţriđju hlutar stúdenta ljúka háskólanámi
Hagstofa Íslands hefur tekiđ saman gögn um háskólanám stúdenta frá
Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Í gögnunum kemur međal annars fram ađ á 5 ára tímabili frá
haustönn 1995 til vorannar 2000 luku 342 nemendur stúdentsprófi frá skólanum,
229 konur og 113 karlar. Í lok árs 2008 höfđu 214 af ţessum nemendum lokiđ
einhverju háskólaprófi, ţar af 140 konur og 74 karlar.
Af ţessum gögnum má ráđa ađ nćstum tveir ţriđju hlutar
stúdenta frá Fjölbrautaskóla Vesturlands ljúki háskólanámi innan 8 ára
frá útskrift og ađ í ţeim hópi séu konur um tvöfalt fleiri en karlar.
30. apríl: Kveđjuhóf
útskriftarnema (Myndir ...)
Í dag héldu nemendur sem útskrifast í lok annar kveđjuhóf (dimission).
Ţađ fór fram međ hefđbundnum hćtti. Nemendurnir buđu starfsfólki til morgunverđar
klukkan 9:30 og héldu skemmtun á sal í síđustu kennslustund fyrir hádegi.
Ţeir voru klćddir sem kúrekar.
Myndin hér ađ neđan var tekin í morgunverđarbođinu. Hćgt er ađ
sjá fleiri myndir međ ţví ađ smella hér.

Fleiri
fréttir ...
|