Brautskráning og skólaslit

Í dag, 18. maí, voru 47 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Athöfnin fór fram á sal skólans og hófst klukkan 13. Jens B. Baldursson aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar 2013. Elsa María Guðlaugsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
   Við athöfnina fékk Unnur Ýr Haraldsdóttir, sem útskrifaðist með stúdentspróf af náttúrufræðibraut, verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar. Unnur Ýr hlaut einnig viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2013.
   Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri afhenti námsstyrk Akraneskaupstaðar. Hann hlaut Guðrún Valdís Jónsdóttir sem lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut í desember 2012.

Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og störf að félagsmálum. Nöfn þeirra sem gáfu verðlaun eru innan sviga.

  • Anna Cipriani fyrir góðan árangur í íslensku og fleiri greinum (Fjölbrautaskóli Vesturlands).
  • Elsa María Guðlaugsdóttir fyrir ágætan árangur í frönsku (Landsbankinn á Akranesi), ágætan árangur í íslensku og sögu (Elkem Ísland), ágætan árangur í þýsku (þýska sendiráðið) og störf að félags- og menningarmálum (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
  • Hrefna Karlsdóttir fyrir ágætan árangur í dönsku (Danska menntamálaráðuneytið).
  • Hulda Margrét Brynjarsdóttir fyrir ágætan árangur í íþróttum (Eymundsson á Akranesi).
  • Ingveldur María Hjartardóttir fyrir ágætan árangur í félagsfræði og uppeldisfræði (Endurskoðunarskrifstofa Jóns Þórs Hallssonar).
  • Karl Þór Jóhannesson fyrir ágætan árangur í sérgreinum á námsbraut í vélvirkjun (Verkalýðsfélag Akraness).
  • Knútur Haukstein Ólafsson fyrir ágætan árangur í erlendum tungumálum (Hugvísindasvið Háskóla Íslands), ágætan árangur í ensku og frönsku (Sendiráð Kanada á Íslandi), ágætan árangur í samfélagsgreinum (Íslandsbanki á Akranesi) og störf að félags og menningarmálum (Uppheimar).
  • Unnur Ýr Haraldsdóttir fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2013 (Fjölbrautaskóli Vesturlands), ágætan árangur í stærðfræði (Norðurál), ágætan árangur í efnafræði og líffræði (Soroptimistasystur á Akranesi), ágætan árangur í viðskiptagreinum (GT Tækni) og ágætan árangur í þýsku (Þýska sendiráðið).
  • Vilborg Sólrún Jóhannsdóttir fyrir ágætan árangur í uppeldisfræði og sálfræði (Rótarýklúbbur Akraness).

Tónlistarmenn sem fram komu við athöfnina voru Ingveldur María Hjartardóttir, Hallmar Gauti Halldórsson og  Heiðmar Eyjólfsson. Ingveldur var brautskráð frá skólanum í dag. Hallmar Gauti og Heiðmar stunda báðir nám við skólann.

Lesa meira...

Prófsýning klukkan 11 til 12 á föstudag

Á morgun föstudag verður prófsýning milli 11 og 12. Þá gefst nemendum kostur á að skoða prófúrlausnir sínar með kennara og fá skýringar á einkunnagjöf.

Sjúkrapróf verða haldin í eftirtöldum áföngum á fimmtudaginn 16. maí.

Kl. 9
DAN2026, ENS3036, EÐL1036, EÐL2036, FÉL1036, FÉL2036, GRT1036, HJÚ2036,  ÍSL3036,  ÍSL4036, ÍSL5036, LÍF1036, LÍF1836, LÍF2036, LOL1036, SAG1036, SAG3036, STÆ2036, STÆ2626, STÆ2936, STÆ3136, ÞÝS1036

Kl. 13
ENS4036, ÍSL1026, SAG2036, STÆ1026, STÆ3036, SÁL1036

Dagsetningar við lok vorannar og upphaf haustannar

15. maí: Síðasti prófdagur.
16. maí: Sjúkrapróf klukkan 9 og klukkan 13.
17. maí: Prófsýning klukkan 11 til 12.
18. maí: Brautskráning og skólaslit klukkan 13.
21. júní: Síðasti dagur sem skrifstofa skólans er opin fyrir sumarfrí.
06. ágúst: Skrifstofa skólans opnar aftur eftir sumarfrí.
22. ágúst: Skólasetning. Nýnemadagur. Stundaskrár afhentar.
23. ágúst: Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá.

Ný skólanefnd skipuð

Menntamálaráðherra hefur skipað skólanefnd fyrir Fjölbrautaskóla Vesturlands til fjögurra ára frá 30. apríl 2013 að telja.
  Aðalmenn án tilnefningar eru Dagbjört Guðmundsdóttir, Reynir Þór Eyvindsson og Thelma Hrund Sigurbjörnsdóttir. Aðalmenn tilnefndir af fulltrúaráði eru Helena Guttormsdóttir og Hjördís Hjartardóttir. Af þessum fimm aðalmönnum voru þrír í fráfarandi skólanefnd. Þeir tveir sem koma nýir inn eru Hjördís Hjartardóttir og Reynir Þór Eyvindsson .
   Varamenn án tilnefningar eru Hjördís Garðarsdóttir, Sigríður Víðis Jónsdóttir og Viktor Elvar Viktorsson. Varamenn tilnefndir af fulltrúaráði eru Anna María Þórðardóttir og Þórdís Þórisdóttir.

Síðasti kennsludagur - vorannarpróf - breyttar prófreglur

Í dag er síðasti kennsludagur á vorönn. Próf hefjast á fimtudaginn. Minnt er á breytingu á grein númer tvö í prófreglum. Hún er nú á þessa leið:

Við skrifleg próf má nota þau gögn sem tilgreind eru á prófverkefnum. Önnur gögn mega ekki vera uppi á borðum og ekki heldur pennaveski, töskur eða aðrar hirslur. Farsíma og tölvur má ekki hafa með í próf. Sé nemandi með slík tæki á sér skal hann afhenda yfirsetumanni þau áður en prófið byrjar. Sé nemandi staðinn að því að nota óheimil hjálpargögn, veita eða þiggja hjálp, skal vísa honum frá prófi þegar í stað og leggja mál hans fyrir skólaráð. Nemandi sem er staðinn að broti af þessu tagi fær falleinkunn á prófinu og getur einnig átt von á brottvikningu úr skóla, tímabundið eða til frambúðar, eftir alvarleika brots.

Dregið úr hreyfikortum og edrúpotti

Síðasti dansleikur nemendafélagsins á skólaárinu var haldinn á föstudagskvöld. Eins og venjulega gátu þeir sem vildu blásið í áfengismæli til að sýna að þeir hefðu ekki drukkið fyrir ball. Nöfn þeirra sem það gera fara edrúpott og þeir eiga von á vinningi eftir ball.  Nú á vorönn var tekið upp á þeirri nýbreytni að bjóða stóran vinning fyrir þá sem fóru í edrúpott eftir öll böll á önninni. Vinningurinn var 100.000 króna vöruúttekt í versluninni Nínu og hann var gefinn af Gamla Kaupfélaginu og Nínu.
   Í fyrstu frímínútum í dag, mánudag, var dregið úr stóra pottinum. Útdráttinn annaðist Gísli Sigurjón Þráinsson frá Gamla kaupfélaginu. Á myndinni hér til hægri er hann ásamt vinningshafanum, Karin Önnu Ólafsdóttur.
   Við sama tækifæri var einnig dregið úr hreyfikortum og nokkrir þeirra sem tóku þátt í atburðum tengdum hreyfingu og heilsueflingu á önninni fengu vinninga sem voru gefnir af eftirtöldum fyrirtækjum: Apótek Vesturlands, Classic hárstofa, Gullsmíðaverkstæði Dýrfinnu, Hárhús Kötlu, Hár-stúdíó, Íþróttabandalag Akraness, Snyrtistofan Face, Verslunin Módel. Aðrir sem styrktu átakið á þessari önn voru m.a. Norðurál og Prentmet Akranesi. Þessum fyrirtækjum er þakkaður stuðningur við heilsueflingu í Fjölbrautaskóla Vesturlands.

Dimission

Í dag er lokahóf útskriftarnema (dimission). Eins og venja er bauð hópurinn sem útskrifast í lok annar starfsmönnum skólans í morgunmat klukkan átta. Í þriðju kennslustund, klukkan 10:50, var svo skemmtun á sal og þar var myndin hér fyrir neðan tekin. Eftir hádegi fer hópurinn í óvissuferð og skemmtir sér saman fram á kvöld.

 Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi | Vogabraut 5 | Sími: 433-2500 | skrifstofa(hjá)fva.is