Sumarleyfi - upphaf haustannar
- Details
- Útgefið 19. júní 2013
Skrifstofa skólans verður lokuð frá klukkan 15 föstudaginn 21. júní til klukkan 13 þriðjudaginn 6. ágúst vegna sumarleyfa.
Skólasetning verður fimmtudaginn 22. ágúst klukkan 10. Nýnemar eiga að mæta á skólasetninguna. Foreldrar og forráðmenn eru einnig velkomnir. Að setningu lokinni munu nýnemar hitta umsjónarkennara sína, fá afhenta stundatöflu annarinnar og önnur gögn um skólann. Síðan verður sérstök dagskrá fyrir nýnema sem luku tíunda bekk í vor. Dagskránni lýkur um klukkan 15. Sama dag fá eldri nemendur stundatöflur afhentar milli klukkan 13 og 16.
Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst föstudaginn 23. ágúst.

Innritun fyrir haustönn 2013
- Details
- Útgefið 19. júní 2013
Nú þegar innritun fyrir haustönn 2013 er lokið eru 580 nemendur skráðir í skólann. Þar af eru 394 nemendur sem voru í skólanum á vorönn og 186 sem eru nýnemar eða endurinnritaðir. Af þessum 186 eru 113 sem luku grunnskóla í vor og eru fæddir árið 1997. Haustið 2012 byrjuðu 115 nemendur í skólanum sem luku grunnskóla vorið áður.
Ný útgáfa skólanámskrár
- Details
- Útgefið 14. júní 2013
Þrettánda útgáfa skólanámskrár er komin á vefinn (sjá undir „Námið“ á valmyndinni hér að ofan). Þetta er síðasta útgáfan sem byggist að hluta til á Aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins frá 1999/2004. Næsta útgáfa sem kemur í júní 2014 verður aðlöguð nýrri Aðalnámskrá.
Umsóknir - svarbréf - greiðsluseðlar
- Details
- Útgefið 11. júní 2013
Frestur til að sækja um skólavist fyrir haustönn 2013 rann út í gær, mánudag 10. júní. Umsóknir bárust frá 102 nemendum sem luku tíunda bekk í vor. Að auki sóttu 40 nemendur úr tíundu bekkjum um Fjölbrautaskóla Vesturlands sem fyrsta varaskóla. Eldri umsækjendur eru 74 talsins.
Allir umsækjendur undir 18 ára aldri fá skólavist en vegna erfiðrar fjárhagsstöðu getur skólinn ekki tekið við öllum eldri umsækjendum.
Umsækjendur fá svarbréf frá skólanum fyrir lok júní. Samtímis verða sendir greiðsluseðlar vegna innritunargjalda með gjalddaga 1. júlí og eindaga 10. júlí. Greiðsluseðlar eru sendir nemendum sjálfum ef þeir eru orðnir 18 ára en forráðamönnum þeirra sem yngri eru. Nemendur eða forráðamenn þeirra staðfesta að þeir þiggi skólavist með því að borga fyrir 10. júlí. Ef seðill er ekki greiddur er litið svo á að nemandi muni ekki koma í skólann og hann því tekinn af skrá.

Innritun lýkur mánudag 10. júní
- Details
- Útgefið 7. júní 2013
Frestur til að sækja um skólavist á haustönn 2013 rennur út næsta mánudag, 10. júní. Hægt er að skrá umsóknir á Menntagátt. Einnig er hægt að prenta út umsóknareyðublað og senda á skrifstofu skólans. Vakin er athygli á að við skólann er heimavist fyrir nemendur sem búa fjarri Akranesi.

Stofnun ársins 2013
- Details
- Útgefið 28. maí 2013
Nýlega kynnti SFR niðurstöður könnunar sem nefnist Stofnun ársins. Þar er Fjölbrautaskóli Vesturlands í 33. sæti af 153 opinberum stofnunum. Sé aðeins litið til ríkisstofnana sem hafa meira en 50 starfsmenn er skólinn í 9. sæti á lista yfir 80 stofnanir. Niðurstöðurnar eru á vefnum http://www.sfr.is/kannanir-sfr/stofnun-arsins/.

Innra mat á vorönn 2013
- Details
- Útgefið 28. maí 2013
Vakin er athygli á gögnum um innra mat á vorönn 2013 sem komin eru á vef skólans. Þau finnast undir Skjöl → Innramat hér neðst til hægri.
Brautskráning og skólaslit
- Details
- Útgefið 18. maí 2013
Í dag, 18. maí, voru 47 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Athöfnin fór fram á sal skólans og hófst klukkan 13. Jens B. Baldursson aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar 2013. Elsa María Guðlaugsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
Við athöfnina fékk Unnur Ýr Haraldsdóttir, sem útskrifaðist með stúdentspróf af náttúrufræðibraut, verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar. Unnur Ýr hlaut einnig viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2013.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri afhenti námsstyrk Akraneskaupstaðar. Hann hlaut Guðrún Valdís Jónsdóttir sem lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut í desember 2012.
Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og störf að félagsmálum. Nöfn þeirra sem gáfu verðlaun eru innan sviga.
- Anna Cipriani fyrir góðan árangur í íslensku og fleiri greinum (Fjölbrautaskóli Vesturlands).
- Elsa María Guðlaugsdóttir fyrir ágætan árangur í frönsku (Landsbankinn á Akranesi), ágætan árangur í íslensku og sögu (Elkem Ísland), ágætan árangur í þýsku (þýska sendiráðið) og störf að félags- og menningarmálum (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
- Hrefna Karlsdóttir fyrir ágætan árangur í dönsku (Danska menntamálaráðuneytið).
- Hulda Margrét Brynjarsdóttir fyrir ágætan árangur í íþróttum (Eymundsson á Akranesi).
- Ingveldur María Hjartardóttir fyrir ágætan árangur í félagsfræði og uppeldisfræði (Endurskoðunarskrifstofa Jóns Þórs Hallssonar).
- Karl Þór Jóhannesson fyrir ágætan árangur í sérgreinum á námsbraut í vélvirkjun (Verkalýðsfélag Akraness).
- Knútur Haukstein Ólafsson fyrir ágætan árangur í erlendum tungumálum (Hugvísindasvið Háskóla Íslands), ágætan árangur í ensku og frönsku (Sendiráð Kanada á Íslandi), ágætan árangur í samfélagsgreinum (Íslandsbanki á Akranesi) og störf að félags og menningarmálum (Uppheimar).
- Unnur Ýr Haraldsdóttir fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2013 (Fjölbrautaskóli Vesturlands), ágætan árangur í stærðfræði (Norðurál), ágætan árangur í efnafræði og líffræði (Soroptimistasystur á Akranesi), ágætan árangur í viðskiptagreinum (GT Tækni) og ágætan árangur í þýsku (Þýska sendiráðið).
- Vilborg Sólrún Jóhannsdóttir fyrir ágætan árangur í uppeldisfræði og sálfræði (Rótarýklúbbur Akraness).
Tónlistarmenn sem fram komu við athöfnina voru Ingveldur María Hjartardóttir, Hallmar Gauti Halldórsson og Heiðmar Eyjólfsson. Ingveldur var brautskráð frá skólanum í dag. Hallmar Gauti og Heiðmar stunda báðir nám við skólann.





