
Til þess að spila þennan leik þarf að sækja zip-skrána á http://itales.edm.luc.ac.be/italco/soft/Italco_runtime.zip, afþjappa hana og setja upp á tölvunni. Þetta er einungis hægt á PC tölvu og einnig verður að vera uppsett Internet Explorer 5.5 eða nýrra.Þegar þessu er lokið er slóðin að leiknum http://www.this.is/harpa/ulfur_og_helga.html
Leikurinn gerist á landnámsöld. Helgu hefur verið rænt og Úlfur, heitmaður hennar, leggur af stað til að bjarga henni. Þessi leikur ætti að henta fólki á aldrinum 10 - 14 ára en reyndar hafa eldri nemendur stundum gaman af honum. Til að leysa leikinn þarf að afla sér ýmiss konar þekkingar, þ.e. markmiðið með þessum leik er að fólk læri eitthvað á því að spila hann.
© Harpa Hreinsdóttir