Erlent samstarf í Fjölbrautaskóla Vesturlands skólaárið 2002 - 2003


Heimsóknir í FVA

Í september komu 8 ítalskir nemendur, frá I.T.I.S. Giorgi í Mílanó, og 2 kennarar.  Nemendurnir dvöldu hér í 3 vikur en kennararnir skiptu þessum tíma á milli sín.  Ítalirnir voru fyrstu og síðustu vikuna í skólanum en eina viku dvöldu þeir á vinnustöðum í starfskynningu.  Þeir bjuggu allir hjá íslenskum fjölskyldum.

Í mars kom sænskur nemandi í fimm daga heimsókn til Íslands, til þess að afla gagna fyrir lokaverkefni sitt um hveri.  Hluta þess tíma dvaldi hún á heimavist FVA og var skólinn henni innan handar með dvölina að öðru leyti.

Finnskur tréiðnanemandi og kennari hennar komu hingað í dagsheimsókn í mars. Undirrituð var þeim innan handar við skipulagningu lengri dvalar á Íslandi.

4 finnskir nemendur dvöldu á Akranesi á vegum FVA í mánuð, á tímabilinu mars-apríl.  Þessir nemendur fengu allir nemapláss á vinnustöðum. Þrír þeirra bjuggu á heimavist FVA en einn bjó í heimahúsi.  Allir fengu þeir fæði í mötuneyti FVA.

Utanfarir nemenda og kennara FVA

Hér eru einungis talin þau verkefni sem undirrituð hefur haft afskipti af, fleiri kennarar en hér eru taldir hafa farið utan, á eigin vegum.

Í lok október sóttu  kennari og námsráðgjafi FVA dyslexíuráðstefnu í Gautaborg.  Nordens Folkelige Akademi styrkti þessa þátttakendur, auk þess sem styrkur fékkst frá Endurmenntunarstofnun HÍ.

Í desember fóru 2 kennarar á undirbúningsfund til Napolí fyrir nýtt Comenius-samstarfsverkefni, sem hefjast á næsta haust.  Þessi ferð var styrkt sem Comenius undirbúningsheimsókn, af Alþjóðaskriftstofu háskólastigsins.

Í febrúar fór stærðfræðikennari, sem vinnur í eSchola / ENIS samstarfsverkefni með Belga og Ítala, ásamt undirritaðri á Schoolnet ráðstefnu Evrópska skólanetins í Brussel.  Menntamálaráðuneytið og Evrópska skólanetið greiddu ferðir og uppihald.

Í febrúar fóru 8 íþróttarbrautarnemendur og íþróttakennari til hálfsmánaðar dvalar í Aasiaat, Grænlandi.   Ferðir og uppihald fékkst styrkt úr Nordplus Junior sjóð Norrænu ráðherranefndarinnar.

Í mars fóru sex tréiðnanemendur til Östersund, Svíþjóð, og Turku, Finnlandi.  Nemendur dvöldust í þrjár vikur ytra, þrír á hvorum stað.  Tveir kennarar fóru til viku dvalar á hvorn staðinn.  Þessar ferðir voru styrktar sem mannaskipti úr Leonardósjóðum, þ.e. af  Starfsmenntunaráætlun Evrópusambandsins.

Í mars fóru sex rafvirkjanemendur til Skellefteå, Svíþjóð, og  Kemi, Finnlandi.   Nemendur dvöldust í þrjár vikur ytra, þrír á hvorum stað.  Tveir kennarar fóru til viku dvalar á hvorn staðinn.  Þessar ferðir voru styrktar sem mannaskipti úr Leonardósjóðum.

Í mars fóru einn kennari og átta nemendur í tæprar viku heimsókn til Muurame.  Ferðakostnaður fékkst að mestu styrktur sem Vest-norden verkefni, frá Norrænu ráðherranefndinni.

Í júní munu 4 kennarar FVA fara á lokafund vegna Comenius-verkefnis sem er að renna sitt skeið á enda, til Napolí.


Undirrituð mun láta af  störfum sem umsjónarmaður erlends samstarfs í FVA nú í vor.
 

Gert þann 4. maí 2003

Harpa Hreinsdóttir
harpa@ismennt.is
http://www.fva.is/harpa/


 


Eldri skýrsla, um erlent samstarf skólaárið 2001- 2002