![]()
Þessi vefur er sleginn með styrk frá Menntamálaráðuneytinu sumurin 2003 og 2004. Reynt verður að halda áfram vinnu við hann næstu árin. Markmiðið er að semja efni um ýmislegt sem snertir daglegt líf fólks á þjóðveldisöld, þ.e. frá landnámi og til miðrar 13. aldar, með tilvísun til fornra bókmennta, einkum Íslendingasagna. Leitast er við að krækja í fyllri umfjöllun þar sem hægt er eða vísa í bækur og rit sem slíkt hafa að geyma. Um suma efnisþætti eru heimildir heldur fátæklegar. Reyndar var strax í upphafi sleginn ákveðinn varnagli fyrir umfjöllun, einkum um sannleiksgildi Íslendingasagnanna. Nú í sumar hafa bæst við síður um klæði og fatnað á þjóðveldisöld.
Höfundur þessa vefjar er Harpa Hreinsdóttir, framhaldsskólakennari á Akranesi. Allar ábendingar eða mat á efni hans eru vel þegnar og má senda á netfangið harpa@fva.is.