| Þú ert sjálfur laxness
Laxness trónir einn á efsta stalli,
aðrir hljóta vist í skugga hans.
Þú munt síðar svara þínu kalli
og setjast beint í stól hins gengna manns
Það er víst að þú átt framtíð
bjarta,
þú ert sjálfur laxness innst í hjarta.
Forðum varstu liðinn ansi illa,
enginn skildi heldur boðskap þinn,
vinstri menn sem vilja öllu spilla
við þig klesstu grófan rógburð sinn.
Víst er heimska þjóðar þinnar meinið,
þú ert sjálfur laxness inn við beinið.
Fræðimenn þig hrokafullir hæddu,
hröktu þig og mikluðust af sér,
sífellt gegn þér blindir áfram æddu,
aldrei ná þeir samt að granda þér.
Þú munt vega þar að fylking miðri,
þú ert sjálfur laxness undir niðri.
Brátt mun laxness eigra meðal okkar,
aðrir verða þá að bugta sig,
sjálfumglaðir fúlir vinstri flokkar
fá þá ekki að hnýta meir í þig.
Þvílík dýrð að þú munt
taka völdin,
þú ert sjálfur laxness bak við tjöldin.
---
Fagurlega öll þín aðföng dróstu
upp úr brunnum þeirra er mest þig smá.
Sigurviss til beggja handa hjóstu,
höfuð fuku af mörgum boli þá..
Þótt þú færir þarna yfir strikið,
þú ert sjálfur laxness fyrir vikið.
Jón Ingvar Jónsson
Sjá http://www.heimskringla.net/ |