
Hér að neðan eru þrjár ljóðaþvögur eftir Atla Harðarson. Ljóðþvögu má lesa jafnt lárétt sem lóðrétt, líkt og krossgátu. Þær eru birtar hér með leyfi höfundar. Heimasíðu Atla má sjá á http://www.this.is/atli.
Skáldin lofa ljóða þvögu, lofa góðan þokka háttar. Ljóða þokka þjóðir unna. Þvögu háttar unna skáldin.
Vindar grösin grænu strjúka, grösin bærast, stráin líka, grænu stráin, störin bláa, strjúka líka bláa tinda.
Fluga suðar sætum rómi, suðar löngum rómi þýðum. Sætum rómi rausar fluga. Rómi þýðum fluga suðar.
Gert þann 25. janúar 2004