Á þessari síðu er krækt í ljóð eftir ýmsa, og efni um ljóð sem ég er að nota í augnablikinu. Sjálf get ég ekki svo mikið sem klambrað saman fyrriparti. (Annars hef ég þá kenningu að þeir sem læra laglínur eins og ekkert sé geti hvorki lært vísu við að heyra hana einu sinni né ort vísu auðveldlega ... og öfugt ... Held í þá kenningu uns eitthvað afsannar hana.)
Hér ríkir hin mesta óreiða, það eina sem ég hef að leiðarljósi er að eitthvað sé sérstakt eða sniðugt eða heillandi við ljóðin.
Þetta ljóð fjallar tvímælalaust um það sem er efst á baugi nú í janúar 2004 ... Í liðinni viku var birt dæmi um ljóðaþvögu í Mogganum. Atli fór að æfa sig að semja slíkar ... Atli hefur líka samið vísnagátur ... Þetta er síða sem ég bjó til handa ÍSL 583. Einnig bjó ég til gagnvirkt próf í þessum fræðum. Dæmi um tvær mjög góðar þýðingar á sama ljóðinu. Notað sem verkefni í ÍSL 583. Gaman að sjá bragarháttinn notaðan ennþá. Svo reynir á þekkingu manna á ljóðum ástmagar þjóðarinnar. Notað sem verkefni í ÍSL 583.
Gert þann 25. janúar 2004