![]()
Séra Jón Jónsson eða Séra Jón prímus, eins og hann er kallaður vegna prímusaviðgerða sem hann vann við, var búinn að vera prestur í 30 ár. Virtist hann vera löngu búinn að missa trúna. Hann var farin að dýrka jökulinn og hlakkaði til að deyja í jökulinn. Var hann orðinn eitthvað ruglaður, hvort það var út af návist jökulsins eða af elli. Hann var hættur að fara í kirkjuna og var hann búin að loka henni. Jón var skemmtilegur kall og mjög orðheppinn og var einkar laginn við að koma sér undan spurningum.
Anna Björgvinsdóttir og Rósa María Salomonsdóttir.Ljósmyndina tóku Sigrún Inga, Edda og Vigdís.
Harpa gerði myndina gamaldags.
Fyrirsæta er Kristján Elís.
Séra Jón „Prímus“ er gamall sóknarprestur á Snæfellsnesi, nánar tiltekið undir Jökli. Viðurnefnið „Prímus“ fékk hann af því að hann var alltaf að gera við prímusa. Hann er hæglátur og rólegur maður, og fólk undir Jökli segir að hann geti gert við nánast hvað sem er. Hann er hjálpsamur og er alltaf til í að hjálpa til við að járna hesta og gera margt fleira.
Biskup sendi umboðsmann sinn (Umba) til að athuga með séra Jón. Þar á meðal á Umbi að athuga hvort hann sinni skyldum sínum sem sóknarprestur og hvort hann sé giftur.
Mín skoðun á séra Jóni er sú að ég held að hann sé gamall, góðlegur karl. En ég held að hann sé svolítið skrítinn.
Þórdís Anna Garðarsdóttir og Rut Berg Guðmundsdóttir.Myndina af Jóni að járna hest teiknaði Tinna.
Sr. Jón Prímus var svolítið mjög fjölhæfur og hafði ákveðnar skoðanir og stóð fastur á þeim og hafði sérstaka lífssýn og sumir segja að hann sé búinn að missa trúna og sé hættur að messa og jarða fólk og hefur ekki sótt prestlaunin í 30 ár.
Axel og Guðjón.Myndina af kirkjunni teiknaði Thelma Sjöfn.
Jón prímus: Hann var u.þ.b sextugur prestur undir jökli. Hann hefur ekki sinnt starfi sínu eins og vera skyldi og hefur ekki sótt launin sín í u.þ.b 20 ár. Í frístundum sínum gerir hann við prímusa og járnar hesta. Hann negldi kirkjuna aftur og leyfði safnaðarbörnunum að bera ýmsa muni út úr kirkjunni. Hann trúir því að þegar fólk deyr gangi það í jökulinn. Hann giftist konu fyrir 30 árum sem hann kallar Úu. Hann segjir að hún hafi horfið með vini hans Godman Syngmann. Jón byrjaði í sagnfræði en fann sér svo betri fabúlu (lygasögu) og fór í guðfræðina.
Harpa Dröfn Skúladóttir og Kristín Björg Jónsdóttir
í framhaldsdeild FVA í Stykkishólmi.