Hagnýt málnotkun
ÍSL 583

Í þessu verkefni geturðu valið um að

  Taka viðtal og vinna úr því.  Gert er ráð fyrir að fullunnið verði þetta viðtal 2- 3 síðna texti, sett upp eins og viðtal í vönduðu tímariti, myndskreytt og fyrirsagnir vel valdar.

  Taka viðtal, lesa þér til og skrifa vandaða tímaritsgrein um efnið.  Gert er ráð fyrir að fullunninn verði greinin 2 - 3 bls. texti og einhver myndskreyting verður að fylgja.

  Skrifa ritgerð um valið efni, sem áður hefur verið fjallað um í þessum áfanga.  Þú mátt líka velja þér efni, í samráði við kennara. Ritgerðin á að vera 3- 5 blaðsíðna löng.

Skila á efnisgrind / skipulagi ritunarverkefnsins um leið og verkefninu sjálfu.
 

Ef þú ákveður að taka einhvern tali er heppilegt að nota opna daga til þess.  Kennari hefur ekki haft samband við neinn eftirtaldra og ef þú hyggst tala við einhvern er rétt að skipuleggja það með nokkrum fyrirvara, ekki hvað síst hafa samband við viðkomandi, gá hvort hann / hún samþykkir viðtal, mæla sér mót, verða sér út um stafræna myndavél, diktafón eða annað upptökutæki o.s.fr.  Svo þarftu auðvitað að undirbúa spurningarnar og vita eitthvað um efnið.  Hugsanlegir viðmælendur eru:

Hermann Stefánsson, M.A. og Þröstur Helgason, M.A., sem kenna námskeiðið  05.40.37 Blogg, blogg, blogg! í íslenskuskor Háskóla Íslands, nú á vorönninni.

Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor við HÍ, sem er einn af forsvarsmönnum tungutækni (nýtt nám við HÍ þar sem samþætt er málfræði og forritun).  Sjá nánar http://www.hi.is/~eirikur/

Þórunn Blöndal, lektor í íslenskri málfræði við KHÍ.  Þórunn er einn frumkvöðla í rannsóknum á íslensku talmáli.  Sjá nánar http://starfsfolk.khi.is/thblond/

Megas, þjóðþekktur tónlistarmaður sem hlaut verðlaun Dags íslenskrar tungu, fyrir nokkrum árum, fyrir framlag sitt til góðrar textagerðar.  Heitir Magnús Þór Jónsson, fullu nafni.

Steindór Andersen, formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar, sjá http://www.rimur.is/.  Steindór hefur slegið í gegn með samstarfi sínu við Sigurós og Erp Eyvindarson (e.t.v mætti einnig taka viðtal við Erp, a.m.k. ef meining er að fjalla um rapp og rímur).
 

Hugsanleg ritgerðarefni, einkum fyrir rökfærsluritgerð, eru:

Gefin verður einkunn, á skalanum 1 - 10, fyrir þetta verkefni.  Einkunnin byggist á því hve skipulega efnið er fram sett, hve mikil vinna virðist liggja á bak við það, hve frágangur er góður (innifalið í þessu er stafsetning), hve málfar er lipurt og hvort einhver frumleg hugsun sé í ritsmíðinni.