Lestu vel greinarnar sem eru í fjölriti og flettu upp í Handbók um ritun og frágang í hvert sinn sem þig vantar upplýsingar eða spurningar vakna.
Verkefnið hér á eftir má vinna sem einstaklingsverkefni eða tveggja manna verkefni, á að skila útprentuðu og á tölvutæku formi fyrir 20. mars. Gefin
verður einkunn eins og fyrir önnur smærri verkefni.1. Hvað er:
- Málgrein
- Efnisgrein
- Efnisyrðing
- Lykilsetning
2. Lýstu forritinu Ritbjörgu á ½ - 1 síðu. Miðaðu lýsinguna við lesanda sem ekki hefur haft nein kynni af þessu forriti áður.3. Hvað gerir forritið Púkinn? Hvernig er Púkinn notaður? (Lýstu því á svona ½ síðu. Miðaðu lýsinguna við sama fáfróða lesandann og í spurningu 2.)
Seinni tvær vikurnar skaltu nota til að vinna stóra verkefnið. Það er einstaklingsverkefni og á að skila kennara fyrir páska. Þetta verkefni á annað hvort að vera unnið viðtal, grein unnin upp úr viðtali eða ritgerð um valið efni. Sjá nánar hér.