„Í salkynnum þessum var engin sál nema ein
sem agaði mál sitt við stuðlanna þrískiptu grein
né efldist að bragstyrk við orðkynngi heiðinnar drápu.“(Úr „Ég kom þar“ eftir Jón Helgason)
Lesefni: Davíð Erlingsson. „Hvað ógnar tungunni?“ (seinni hluti greinar, frá bls. 25); Mörður Árnason. „Hæ“. (Þessar greinar eru í fjölriti.)
Einnig ljóðin eftir Birgi Svan Símonarson, Gyrði Elíasson og Einar Má Guðmundsson, sem eru í fjölriti
Ath. Próf úr Málgagni verður haldið í fyrstu kennslustund 9. viku. Nemendur mega hafa með sér öll tiltæk hjálpargögn utan lifandi fólk.
Verkefnin hér á eftir má vinna sem einstaklingsverkefni eða tveggja manna verkefni, á að skila útprentuðu og á tölvutæku formi fyrir 5. mars. Gefin verður einkunn og hluti svara birtur á vef.
1. Lestu ljóðið „Svar til Jónasar“ og svaraðu svo eftirfarandi spurningum:
Hvar eru stuðlar í ljóðinu? Af hverju heitir þetta ljóð Svar til Jónasar? Hvaða Jónasi er svarað og hverju er svarað? Undir hvaða bragarhætti er þetta ljóð ort? Túlkaðu ljóðið og legðu mat á það. ![]()
Merki Dags íslenskrar tungu
er vísbending ;-)2. Finndu 3 dæmi um tvíræðni / orðaleik / vísanir í auglýsingum. (Beðið er um eitthvað á borð við „Stendur þér ... á sama þótt“ auglýsingu Tóbaksvarnarráðs.
3. Finndu 2 dæmi um óheppilegar vísanir / tilvitnanir / orðalag í fréttum eða dagblöðum. (Beðið er um eitthvað á borð við „Hún er talin létt á bárunni“ sem sagt var í sjónvarpi um Madeleine Albright eða „Bush fíflaði Saddam“ sem var fyrirsögn í ónefndu dagblaði í desember 2003.)