ÍSL 583
8. vika
15.- 21. febrúar.


(Myndin er eftir Inga Jensson og birtist í Skólavörðunni í desember 2003.  Ingi gaf leyfi til að birta myndina hér.)
 

Lestu kaflann „Mál og vinnubrögð“, eftir Kristján Eiríksson, og greinar Ara Páls Kristinssonar,  „Um nýyrði“ og „25 nýyrði frá 1982-1990“ (í fjölriti). Lestu ritgerð Birgis Baldurssonar, Teknófríkin rúla, á vef.

Skoðaðu  Frá tölvuorðanefnd: Orð vikunnar  og Nýyrðasmiðju Málþvottahússins, Vefsetur Íslensku Hreintunguherjanna

Lestu útskýringar á myndmáli, þ.e. myndhverfingu, viðlíkingu og persónugervingu, og um önnur algeng stílbrögð í ljóðum.


1. Taktu prófið í greiningu myndmáls (Hot Potatos krossapróf) þangað til þú færð 10 eða 100% rétt.
 

Verkefnin hér á eftir  má vinna sem einstaklingsverkefni eða tveggja manna verkefni, á að skila útprentuðu og á tölvutæku formi fyrir 20. febrúar. Gefin verður einkunn og hluti svara birtur á vef.

2. Búðu til setningar sem sýna dæmi um myndmál:  3 dæmi um myndhverfingar; 3 dæmi um viðlíkingar; 3 dæmi um persónugervingar.

3. Hver nýyrðanna frá 1982 - 1990  hafa verið tekin upp í daglegt mál nútímans?  Hvað ræður því hvort ný orð öðlast brautargengi í málinu?  Hvað finnst þér um nýyrðasmíð á borð við tölvuorðanefndar eða Málþvottahússins?

4. Kannaðu hvað er í hádegismat og kvöldmat einn dag í vikunni (heima hjá þér eða hjá Agli kokki); Skrifaðu matseðilinn fyrir þennan dag án nokkurra tökuorða. (Ef þú lendir í miklum vandræðum með að finna alíslensk orð er hugsanlegt að leita fanga í bók Helgu Sigurðardóttur, Matur og drykkur, sem hefur verið margoft gefin út, síðast 1991.)