
Nemendur velti fyrir sér hvers virði það er er að vera vel máli farinn. Nemendur kynnist því hvernig nýbreytni og auðgun málsins rennur af rótum íslenskrar tungu. Þeir þjálfist í ýmiss konar greiningu og beitingu málsins og geri sér grein fyrir mismunandi notkun íslensks máls eftir efnum og aðstæðum. Nemendur geti myndað sér sjálfstæða skoðun í umræðu um málvernd, málstefnu, málbreytingar og annað sem gjarna er flaggað á hátíðlegum stundum. Þeir átti sig og á þeirri hættu sem ofstækisfull þjóðernisstefna gæti skapað. Loks skal stefnt að því að nemendum þyki vænt um sitt móðurmál og sjái þá ótæmandi möguleika sem það býr yfir.