ÍSL 583
4. - 5.  vika
18. -31. janúar.
„Land þjóð og tunga, þrenning sönn og ein,
þér var ég gefinn barn á móðurkné;
ég lék hjá þér við læk og blóm og stein,
þú leiddir mig í orðs þíns háu vé.“

(Úr „Land þjóð og tunga“ eftir Snorra Hjartarson.)

 
 
Svaraðu spurningunum hér á eftir í stuttu máli.  Mælt er með því að tveir vinni saman í þessu verkefni en heimilt er að skila einstaklingsverkefnum.  Svörum á að skila útprentuðum og einnig á tölvutæku formi, fyrir 23. janúar (Íslensk málstefna) og 29. janúar (Íslenska á okkar dögum).
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Íslensk málstefna

Í hverju felst íslensk málstefna?  Hver eru meginrökin fyrir þessari stefnu?  (Sjá Ari Páll Kristinsson, 2000, http://vestnorden.no/islpolitikk.htm)
Ert þú sammála eða ósammála íslenskri málstefnu / rökum fyrir íslenskri málstefnu?

Hvert er hlutverk íslenskrar málnefndar? (Sjá http://www.ismal.hi.is/Stefnuskra2002-2005.html.)  Svaraðu þessu í stuttu máli, 3 - 4 línur er nóg.  Finnst þér ástæða til að hafa svona nefnd?  Af hverju / af hverju ekki?

Hvernig vilt þú skýra hugtökin:  Málhreinsun, málvernd, málrækt, hreintungustefna?

Skoðaðu grein Eiríks Rögnvaldssonar,  1985. „Málstefna í nútíð og framtíð.“ Skíma, 8/1:7-10. Hver eru rök Eiríks fyrir því að þáverandi málstefna sé úr sér gengin?  Hefur íslensk málstefna breyst frá því hann skrifaði sína grein?

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Íslenska á okkar dögum

Stjórntæki - vald - hluti af menningu og þjóðarímynd

Lestu grein Hjördísar Hákonardóttur  „Lagamálið: tæki valds og réttlætis“ (í fjölriti).  Um hvað fjallar þessi grein?  Er Hjördís ánægð með ástandið eða vill hún breyta einhverju?

Skoðaðu nýjasta dóminn á vefsíðu Hæstaréttar, http://www.haestirettur.is/, lestu vandlega yfir skáletraða útdráttinn í upphafi og síðan kaflann sem heitir Dómur Hæstaréttar.  Skrifaðu hálfa síðu þar sem þú segir um hvað þessi dómur er og hvernig þér gekk að skilja hann.  Er þessi dómur í samræmi við það sem Hjördís talar um?

Lestu grein Guðrúnar Kvaran  „Málfar í stjórnsýslu“ (í fjölriti).  Hvaða 4 ástæður telur hún vera orsök stofnanamáls?  Hvað ráðleggur Guðrún til að komast hjá þessu?

Lestu grein Toshiki Toma, „Íslenskur, en ekki Íslendingur...? Þjóðernishyggja Íslendinga og innflytjendur “ (í fjölriti).  Hvað er íslenska sem annað mál?  Af hverju eiga Íslendingar erfitt með að samþykkja hana?  Hvað er til úrbóta, að mati Toshiki Toma?

Hver er munurinn á orðanotkuninni nýbúi, ... af erlendu bergi brotinn og útlendingur?  Af hverju vilja menn frekar nota sum þessara orða en önnur?

Hvað finnst erlendu fólki sem hefur reynslu af því að búa og starfa á Íslandi?  Taktu stutt viðtal við Flemming, Ludmilu, Ævar eða Úrsúlu (eða  einhvern annan) og reyndu að komast að því hvað þeim finnst um mikilvægi þess að tala íslensku;  Skiptir hreimur máli?  Skipta beygingar máli?  Er tekið tillit til þess að íslenska er ekki móðurmál þeirra eða mæta þau fordómum?

Skilaðu svörum við þessum verkefnum á tölvutæku formi fyrir þann 29. janúar.  Vertu tilbúinn til að segja frá niðurstöðum þínum í kennslustund þann 29. eða 30 janúar.