ÍSL 583
6. vika
1. - 7. febrúar

 


„Sagt í gönguferð: „Ég verð að ganga á línunni.“ (á gangstéttinni)
„Af hverju?“
„Af því að annars verð ég game over!““
(Frá Leikskólanum Iðavelli á Akureyri, tekið úr Fréttabréfi Delta Kappa Gamma haust 2003, s. 24.)
 

Lestu  yfir glærur Þórunnar Blöndal, þann hluta sem heitir 2. Talmál - ritmál. Athugaðu að þessar glærur hverfa af slóðinni í febrúar svo það borgar sig kannski að hlaða þeim niður hið fyrsta.  Einnig á  að lesa Indriða Gíslason o.fl., „3.5 Málsnið í formlegu máli“, (s.39-40), í fjölriti.

Skoðaðu svo dæmi um blogg, dæmi um irc og dæmi um sms.  (Síðan Recommended  Emoticons and Smileys for Email Communication er góð uppflettisíða fyrir tákn sem notuð eru í slíkri ritun.)

Verkefni úr þessum hluta eru margþætt og má vinna þau 2 saman eða skila sem einstaklingsverkefnum. Þessum verkefnum á bæði að skila á tölvutæku formi (helst í tölvupósti til harpa@fva.is) og útprentuðum á pappír.  Skilafrestur rennur út 6. febrúar en verkefnum má skila hvenær sem er fyrir þann tíma.  Þegar nemandi hefur skilað verkefnum í þessum námsþætti þarf hann ekki að mæta í kennslustundir fyrr en næsti hluti hefst. Gefin verður einkunn fyrir verkefnin og einnig verða sum svörin birt á vefsíðum (svo það borgar sig að vanda sig!).
 

1.  Hvað er málsnið og hvað ræður vali þess?

2. Skoðaðu dæmi (33) í grein Indriða Gíslasonar o.fl., sem og endurgerð þess (34). Í hverju liggur munurinn?

3. Umorðaðu dæmið um bloggtextann eða samtalið á #akranes (2 hlutar af þremur er nóg) á formlegt íslenskt ritmál (þ.e.a.s. mál sem íslenskukennarinn þinn myndi telja tækt í ritgerð). Fyrir neðan skaltu skrifa greinargerð um hvað greini upphaflega bloggtextann eða samtalið á irk-rásinni frá hefðbundnu ritmáli, skoðaðu sérstaklega stafsetningu, orðalag, setningaskipan, fallbeygingar og stíl.

4. Skrifaðu ½ síðu hugleiðingu um hvort ný tækni muni stuðla að róttækum breytingum á íslensku máli.