
Lestu brotin úr „Dýrasögu“ Ástu Sigurðardóttur, Vögguvísu Elíasar Mars og Biobörnum Yrsu Sigurðardóttur sem eru í fjölritaða heftinu.Einnig þarftu að hafa séð Stellu í orlofi og ná þér í eintak af barnabók, kennslubók í sögu, félagsfræði eða náttúrufræði og einhverja Íslendingasögu. (Bækurnar má eflaust nálgast á bókasafni.)
Verkefni úr þessum hluta eru margþætt og má vinna þau 2 saman eða skila sem einstaklingsverkefnum. Þessum verkefnum á bæði að skila á tölvutæku formi (helst í tölvupósti til harpa@fva.is) og útprentuðum á pappír. Skilafrestur rennur út 13. febrúar en verkefnum má skila hvenær sem er fyrir þann tíma. Þegar nemandi hefur skilað verkefnum í þessum námsþætti þarf hann ekki að mæta í kennslustundir fyrr en næsti hluti hefst. Gefin verður einkunn fyrir verkefnin og einnig verða sum svörin birt á vefsíðum (svo það borgar sig að vanda sig!)
1. Skrifaðu ½ - 1 síðu þar sem þú gerir grein fyrir hvernig málfar er hluti af persónusköpun í bókmenntunum sem eru í fjölritaða heftinu. (Hvað segir t.d. málfarið lesanda um aldur sögupersóna, menntun, stétt og stöðu? Hefur þessi þáttur í persónusköpun Ástu Sigurðardóttur og Elíasar Mars elst vel eða er eitthvað af þessu illskiljanlegt nútímalesanda? ) Hvað með málfar í kvikmyndum, t.d. málfar sveitabarnanna og borgarbarnanna í Stellu í orlofi?
2. Læsileiki texta:
Greindu læsileika (lix-stuðul skv. kenningum Björnssons) í einni barnabók (fyrir 3- 7 ára börn), einni kennslubók (athugaðu að texti hennar verður að vera í samfelldu máli) og einni Íslendingasögu. Skilaðu útreikningum ásamt niðurstöðum.
Hvernig er hægt að nýta mælikvarða Björnssons sem leiðbeiningar í að skrifa læsilegan texta? (Þ.e.a.s. hvað er það sem gerir texta læsilegan eða ekki læsilegan skv. mælikvarðanum?)