Svolítið um lix, úr verkefnum nemenda ... sjá nánar hér hvað Lix er:

Litla hvíta Lukka

Ég athugaði texta, Litlu hvítu Lukku eftir Helen Bannerman (Iðun 1980), Bókin nær því ekki að vera 2000 orð, en bækur fyrir yngstu kynslóðina gera það yfirleitt ekki, ég taldi því öll orðin í henni.

Af 777 orðum voru 102 lengri en 6 stafa, 102/777=0,131274=13%
Í bókinni eru 55 málsgreinar að meðaltali 14,12727 (=777/55) orð að lengd

13,1274+14,12727=27,25467=27,3%

Bókin er því mjög auðveld lestrar samkvæmt Lix les-stuðlinum.

(Þorgerður)


Almenn sálfræði, hugur heili hátterni

Bókin sem ég valdi mér að reikna út lix-stuðulinn er kennslubók í sálfræði 213 sem nefnist Almenn sálfræði, hugur heili hátterni, sem er eftir Jörgen L. Pind, í þýðingu Aldísar Unnar Guðmundsdóttur. Í 2000 orða texta í bókinni voru 517 orð með fleiri en sex stafi, sem gerir 26% af 2000 orðum. Þegar reiknað var út meðaltalið af því hversu mörg orð eru að meðaltali í hverri málsgrein kom í ljós að það eru 19 orð. Út frá þessum útreikningum kemur í ljós að lix-stuðullin í þessari bók er 45, sem táknar að textinn er ögn erfiður. Ég hélt reyndar að stuðullinn yrði hærri.

(Sara Sig.)


Eðlis- og efnafræði orka og umhverfi

Ég greindi lix-stuðul í eðlis-og efnafræðibókinni minni Eðlis- og efnafræði orka og umhverfi eftir Rúnar S. Þorvaldsson og lix-stuðull þeirrar bókar er u.þ.b. 45.  Af 2000 orðum voru 571 orð lengra en 6 stafir eða 28,55% orðanna. Af 200 málsgreinum voru að meðaltali  16,51 orð í hverri málsgrein og lix-stuðullinn því 28,55+16,51=45,06. Textinn telst því vera á bilinu ögn erfiður til að vera efriður.

(Rut Berg)


Pappírs-Pési

Við ákváðum að velja okkur barnabók til þess að vinna úr LIX stuðlinum. Við völdum bókina um Pappírs-Pésa. Þar töldum við 2000 orð og 200 setningar. Orð sem voru 6 stafir eða meira voru samtals 519 og svo reiknuðum við út stuðulinn.

519 / 2000 = 0,2595
2000 / 200 = 10  meðalfjöldi orða í hverri málsgrein

Út úr þessu fengum við það að læsileiki þessarar bókar er um það bil = 26 + 10 = 36 og í stuðlinum er talað um að 40 sé =  ögn erfiður.
Þannig að við fengum út að Pappírs-Pési sé ekki alveg fyrir börn sem eru nýbyrjuð að lesa heldur börn á aldrinum 9-12 ára.

(Gunnur og Kristín Guðný)