
Líðandi stund=)3. desember 2003 - 12:02
Jæja í dag er víst byrjunin á martröðinni...JÁ! Prófin eru opinberlega byrjuð hjá mér í dag og ég er ekki hið minnta ánægð með þau málefni! Ég er oftast alveg ágætlega góð í fögum þegar ég er í venjulegum tíma en þegar það kemur að prófum, þá er voðinn vís! Gleymi öllu sem ég ætti að vita, rugla nöfnum saman og bara on and on:/ En jæja víst ekkert hægt að gera í þeim málefnum!Hmm....í gær fór ég með settinu til rvk að versla á mig jólaskó;) Allavega kíktum við fyrst á Subway í Smáralindinni og fengum okkur bræðing:D Eftir það yfirgáfum ég og mútta hann pabba minnz og fórum á skóveiðar... Fundum skónna í fyrstu búðinni sem við kíktum í sem var Bianco (eða hvennig sem þetta er nú stafað!)... Viti menn ég og mamma rákumst þar á eins af búðareigendunum og það var engin önnur en mamma gamlar vinkonu minnar í Danmerkur sem fluttu aðeins á undan okkur tilbaka til Íslands:D Klikkuð tilviljun...Hún var alveg klikkað hress eins og alltaf og við spjölluðum við hana í þónokkra stund:) Eftir þetta fórum ég og mútta að leita ef jóla/afmælisgjöf handa pabbalingnum en því miður fundum við ekki neitt þar sem pabbi á allt!
Þannig ég og mútta gáfumst upp og fórum í Hagkaup að versla í matinn og sols:)
Vel heppnuð rvk ferð ef ég sjálf má segja frá...:)En jæja best að ég hætti að röfla hénna inná bloggið um ikkað sem öllum er örugglega alveg skít sama um og fara að læra meira undir þetta blessaða próf sem ég er að fara í;)
Bless elskurnar=* hehe
(Birt með leyfi höfundar bloggsins.)