LA BELLE Mín er meyjan væna
mittisgrönn og fótnett,
bjarteyg, brjóstafögur,
beinvaxin, sviphrein.Hvít er hönd á snótu,
himinbros á kinnum,
falla lausir um ljósan
lokkar háls inn frjálsa.(Jónas Hallgrímsson)
SVAR TIL JÓNASAR Minn er sveinninn svinni
með sléttan maga og þétta
hönd og hvelfdar lendar,
herðar breiðar gerðar.
Mánabirtan brúna
brosir hrein við drósum.
Veit hann vörum heitum,
votum hvar skal beita.
(Birta)
Ljóðið birtist í Lesbók Morgunblaðsins
13. desember 2003, s. 12. Höfundur
veitti leyfi fyrir þessari birtingu,
í símtali þann 30. desember 2003.