Verkefni í  ÍSL 483

Þar sem þetta er áfangi án lokaprófs er gert ráð fyrir að stöðug vinna hafi talsvert vægi.  Sú vinna er fólgin í lestri sögunnar, mætingu í tíma, og þátttöku í umræðum í ræðu og riti.  Hluta þessarar vinnu má kanna með prófum en hluti námsmats er með öðrum hætti.
Próf:  Haldin eru 3 próf á önninni.  Tímasetning þeirra kemur fram á kennsluáætlun og prófasíðu.  Ef þarf að breyta tímasetningu prófs verður það auglýst með eins löngum fyrirvara og unnt er.  Hvert próf gildir 25% af lokaeinkunn og er ekki hægt að þreyta próf utan þess tíma sem það er haldið í kennslustund.

Ef nemandi kemst ekki í eitthvert þessara próf skal hann þess í stað skrifa tímaritgerð úr sama hluta sögunnar, svo fljótt sem auðið er.  Framkvæmdin er þannig:  Nemandi fær klukkustund, eftir að kennslu lýkur, til að vinna þetta verk.  Hann má hafa með sér kennslubókina og skriffæri.  Kennari úthlutar nemandanum ritunarefni.  Kennari metur síðan tímaritgerðina og gildir sú einkunn í stað prófseinkunnar í því prófi sem nemandinn missti af.

Þátttaka í umræðum í síðustu kennslustund vikunnar (sennilega á föstudögum) gildir 15% af lokaeinkunn.  Hver nemandi þarf að taka virkan þátt í umræðunni 10 sinnum til að fá fullt fyrir þennan þátt. (Gert er ráð fyrir 13 slíkum kennslustundum svo nemendur hafa nokkurt svigrúm, t.d. ef þeir eru veikir og missa af umræðutíma.) Þá er lagt fyrir verkefni úr þeim hluta sögunnar sem farið af yfir þá vikuna, nemendur ræða þessi verkefni í 2 - 4 manna hópum, í svona 40- 60 mínútur,  og gera grein fyrir hluta niðurstaðna í upphafi kennslustundar næstu viku (sennilega á mánudögum).  Jafnframt skilar hver hópur inn blaði yfir hverjir tóku þátt í vinnunni og tiltekur ef einhver hluti hópsins lagði lítið sem ekkert af mörkum.  Á þessari skilagrein hvers hóps, sem og mætingu í þessa tíma (fjarverandi tekur enginn þátt í umræðu) byggist einkunnagjöfin fyrir þennan þátt. Einnig verður auðvitað tekið tillit til þess ef svör einhvers hóps eru alveg út í loftið og menn hafa greinilega hvorki lesið né fylgst með í tímum vikunnar, þótt þeir kunni að falsa skilagrein hópsins.

Mæting í kennslustundir gildir alls 10% af lokaeinkunn.  Miðað er við mætingu skv. Innu (eftir að veikindavottorð hafa verið dregin frá o.þ.h.) og gefin einkunn þannig:
 
 
Mæting Einkunn
98 - 100 %  10
96- 97 % 9
93- 95 % 8
90- 92 % 7
87 - 89 % 6
84 - 86 % 5
80 - 83 % 4
Undir 80% 0

 
 
 
 
 

Gert í byrjun janúar 2008.
Harpa Hreinsdóttir