ÍSL 483

Kennari: 
Harpa Hreinsdóttir, harpa@fva.is

Vorönn 2008
KennslugögnBrennu-Njáls saga (útg. Mál og menning).  Hægt er að notast við aðrar útgáfur en kennslan miðast við þessa útgáfu (svörtu bókina). Heimasíða áfangans er á http://www.fva.is/harpa/isl483/index.html og eru nemendur hvattir til að fylgjast vel með þeirri síðu. (Ath. að innranetskerfið Plútó verður ekki notað í áfanganum.)

Markmið:  Að nemendur fái staðgóða þekkingu á Brennu-Njáls sögu, geti fjallað um hana í ræðu og riti, tekið afstöðu til verksins og verði ljóst hvers lags snilldarverk þessi Íslendingasaga er.

Kennsluform:  Að hluta verður kennt á hefðbundinn hátt, þ.e.a.s. kennari messar yfir hópnum. (Nemendur athugi að kennari fer talsvert hraðar yfir en gert er í Eglu-yfirferð í ÍSL 303.)  Stefnt er að einum umræðutíma í hverri viku, þar sem nemendur ræða ákveðið efni í smærri hópum og gera síðan grein fyrir niðurstöðum sínum í fyrstu kennslustund næstu viku.
    Heimavinna nemenda er einkum fólgin í lestri sögunnar.
    Stuðst er við þrískiptingu Einars Ólafs Sveinssonar á sögunni (sjá nánar um þetta http://www.ismennt.is/fjar/isl313/njall/vardandi.html) og í lok hvers hluta verður haldið próf úr söguhlutanum.
    Stefnt er að því að fara í  námsferð á önninni, líklega á  Sögusafnið og Þjóðminjasafnið. Þátttaka í slíkri ferð er skylda og nemendur þurfa að bera nokkurn ferðakostnað og kostnað af aðgangseyri.

Námsmat:  Nemendur taka 3 próf á önninni, sem hvert gildir 25% af lokaeinkunn.  Sé nemandi fjarverandi þegar próf er haldið (t.d. vegna veikinda) skal hann þess í stað skrifa tímaritgerð í klukkustund eftir kennslu um leið og nemandinn mætir aftur í skólann.  Þátttaka í umræðutímum gildir 15 % af lokaeinkunn. Mæting í kennslustundir gildir 10% af lokaeinkunn.  Sjá nánar um þetta á síðu um námsmat áfangans.

Kennsluáætlun annarinnar:
 
 
Vikur Dagsetningar Kennsluefni
2.-7. vika 7 .janúar - 16. febrúar
  • I. þriðjungur (1.-81. kafli).  Próf haldið í næstsíðasta tíma 7. viku.
8. - 11. vika 17. febrúar - 15. mars
  • II. þriðjungur (82.-132. kafli). Próf haldið í næstsíðasta tíma 11. viku.
12. - 13. vika  16. -25. mars
  • Páskaleyfi
13.- 16. vika 26. mars - 19. apríl
  • III. þriðjungur (133.-159. kafli). Ferð
17. - 18. vika 20.- 30. apríl
  • III. þriðjungur (133.-159. kafli). Próf haldið í upphafi 17. viku.  Síðasta vikan verður notuð í uppgjör og það sem kann að vera afgangs. 

Gert í byrjun janúar 2008
Harpa Hreinsdóttir